Ágúst
Tæki koma og fara
Tæki koma og fara

06.08.2003 Ágúst

Breytingar á bræðslunni í Óslandi

Þessa dagana er verið að fjarlægja nýlegan loftþurrkara úr bræðslunni í Óslandi en þurrkarinn hefur verið seldur Samherja og fer væntanlega til Grindavíkur. Í staðinn koma fjórir gufuþurrkarar sem keyptir voru úr verksmiðjunni í Sandgerði. Að sögn Aðalsteins Ingólfssonar stjórnarformanns Skeggeyjar ehf. sem á og rekur bræðsluna er þetta liður í að byggja upp rekstrarhæfari og sterkari einingu og um leið að tryggja framtíð bræðslunnar.

Skili þessar breytingar tilætluðum árangri munu þær ekki aðeins tryggja störf við bræðsluna til framtíðar, heldur einnig tryggja framtíð vinnslu á uppsjávarfiski á Hornafirði . Ekki er gert ráð fyrir að þessi breyting leiði til fækkunar starfa hjá fyrirtækinu og leiða má líkum að því að breytingin geti jafnvel orðið til þess að verksmiðjan taki við hráefni stærri hluta úr árinu en nú er. Hvort og þá hversu mikið sólarhringsafköst verksmiðjunnar koma til með að breytast á síðan eftir að koma í ljós. Skinney–Þinganes á Hornafirði og Síldarvinnslan í Neskaupstað eru eigendur að Skeggey ehf .

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica