Tökum nú á drengir, enn er von
Laugardaginn 9. ágúst mun mfl. karla hjá Sindra keppa við Víðir í Garði í 2. deildinni á Garðsvelli kl. 16:00. Víðir er sem stendur í 7. sæti með 17 stig en okkar menn verma botnsætið með 6 stig. Með sigri í þessum leik og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum helgarinnar gætu okkar menn losnað úr botnsætinu og farið að narta í hælana á liðinu í 8. sæti.
Möguleikar okkar manna í þessum leik hljóta að teljast góðir ef miðað er við úrslit leikja í seinustu umferð þar sem Víðir tapaði 6 - 1 fyrir Völsungi á Húsavík en Sindri vann Léttir á Sindravöllum 5 - 1. Og svo merkilegt sem það nú er þá er markhæsti leikmaður 2. deildar leikmaður botnliðs Sindra, Sævar Gunnarsson sem hefur skorað 14 mörk í 12 leikjum og geri aðrir betur. (reyndar ætlar hann að gera miklu betur) Við hvetjum alla stuðningmenn Sindra sunnanlands til að fá sér laugardagsbíltúr í Garðinn og hvetja okkar menn til sigurs. Áfram Sindri





Skrifa athugasemd