Að lokinni verslunarmannahelgi
Nú er verslunarmannahelgin að baki og við tekur löng bið í næsta lögboðna frídag! Umferðin gekk vel fyrir sig í og við Hornafjörð að sögn lögreglu og bílstjórar sýndu almennt góða tillitsemi í umferðinni. Töluverður fjöldi ferðamanna gisti á tjaldstæðum í sveitarfélaginu og naut lífsins í kyrrð og ró fjarri glaumi og gleði útihátíðanna.
Heimamenn lögðu margir land undir fót og var t.d. mikill fjöldi Hornfirðinga á Neistaflugi og næsta víst má telja að flestar útihátíðir helgarinnar hafi notið nærveru Hornfirðinga, í mismiklu mæli þó. Núna fer hið hversdagslega líf að færast í fastar skorður, stærsti ferðamánuður landans að baki og flestir mæta hressir og sprækir til hins reglubundna lífs, geispa kannski aðeins en hrista svo af sér þreytu helgarinnar og byrja að láta sig dreyma um sumarfrí næsta árs.





Skrifa athugasemd