Ágúst
Flugeldasýning á Jökulsárlóni
Flugeldasýning á Jökulsárlóni

04.08.2003 Ágúst

“Eitt það flottasta sem ég hef á ævinni séð

Um 1200 manns mættu á Jökulsárlónið til að verða vitni að flugeldasýningunni sem þar fór fram um miðnætti á laugardagskvöld. Þegar gestir mættu á staðinn þá bar fyrir augu upptendrað Jökulsárlónið þar sem búið var að kveikja á stórum kertum sem staðsett voru á jöklum vítt og breytt um lónið. Veðurguðirnir létu ekki sitt eftir liggja og buðu upp á bestu veðurskilyrði fyrir sýninguna.

Gestir komu víða að, flestir komu frá Höfn, aðrir m.a. frá Skaftafelli og Smyrlabjörgum. Þetta er í fyrsta skipti sem gestum er boðið á sýninguna sem haldin hefur verið undanfarin ár sem hluti af lokahófi starfsmanna við Jökulsárlón með þátttöku annarra aðila úr ferðaþjónustunni. Hrifning þeirra sem séð hafa sýninguna áður sem hefur orðið stærri og flottari með hverju árinu varð til þess að staðarhaldarinn Einar Björn Einarsson var hvattur til að gefa öllum tækifæri til þess að sjá þennan ótrúlega viðburð og því var ákveðið að halda sýninguna nú um Verslunarmannahelgina og öllum boðið að koma.

Að sögn Einars Björns þá stóð undirbúningur og uppsetning flugeldana frá morgni og var sá síðasti settur upp rétt fyrir miðnætti.
Flugeldasýningin hófst skömmu eftir miðnætti og var þeim skotið á loft af jöklum út á lóninu og þegar þeir sprungu lýstu þeir upp lónið sem skartaði sínu fegursta við þessa ótrúlegu birtuskilyrði og í lokin eftir mikla flugelda frá Jökulsárbrúnni þá myndaðist blysfoss sem kom neðan úr brúnni sem lýsti hana upp og straumþungann fyrir neðan. “Þetta er eitt það flottasta sem ég hef á ævinni séð” varð einum áhorfanda að orði og mátti víða heyra fólk ræða málin eitthvað þá þessum nótum. Þá er bara stóra spurningin, verður þetta ekki örugglega endurtekið að ári liðnu?

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica