Ágúst
Umferðareftirlitið skoðar hjálma hjá krökkum
Umferðareftirlitið skoðar hjálma hjá krökkum

04.08.2003 Ágúst

Krakkar á Höfn duglegir að nota reiðhjólahjálma

Reynir Arnórsson umferðaöryggisfulltrúi kannaði í síðustu viku hversu margir krakkar á Höfn notuðu hjálma þegar þeir væru á hjóli. Fór hann á íþróttavöll Sindra eftir hádegi þar sem ungir fótboltamenn ásamt þjálfara sínum voru að æfa. Sex þeirra höfðu komið á hjólum sínum og voru allir með hjálma, sem voru snyrtilega hengdir á hjólin meðan verið var á æfingunni.

 

Þeir sem ekki voru á hjólum sínum sögðust allir eiga hjálma og nota þá þegar þeir færu á hjólin. Þeir fengu staðfestingu þjálfara síns á því að þegar þeir kæmu hjólandi væru þeir allir með hjálma sína. Sem sagt þarna var öryggið í fyrirrúmi og útkoma skoðunar 100% nýting reiðhjólahjálma. Reynir sýndi drengjunum hjálm, sem telpa á Eskifirði var með þegar hún lenti í miklu slysi sl.vetur, en það bjargaði lífi hennar að hún var með góðan hjálm. Reynir verðlaunaði drengina fyrir hjálmanotkunina og gaf þeim nokkur heilræði.

Umferðakönnun í tvo tíma við gatnamót Bogaslóð- Hafnarbraut sýndi að 23 ökumenn notuðu stefnuljós og sami fjöldi notaði þau ekki.

Hvað varðar þá sem virða stöðvunarskyldu sagði Reynir að útkoman hafi verið góð. Tíu bílar komu að stöðvunarskyldunni og auðséð var að menn gættu vel að sér við stöðvunarskyldumerkið. Lögum samkvæmt á að stöðva hjól bílsins alveg Sé lítil umferð eftir aðalbraut og ökumaður nánast stöðvar bifreiðina og sýnir fulla aðgát gerir lögreglan ekki athugasemd við því broti segir Reynir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica