Flugeldasýning á Jökuslárlóni um helgina
Nú hefur Einar Björn Einarsson staðarhaldari á Jökulsárlóni látið undan þrýstingi og býður öllum sem það vilja að koma og verða vitni að hinni árlegu flugeldasýningu á Jökulsárlóni sem fer fram laugardagskvöldið 2. ágúst á miðnætti.
Mikið hefur verið rætt um flugeldasýninguna og segja þeir sem hana hafa séð að hún séð að það sé ekki hægt að finna lýsingarorð yfir hversu stórfengleg hún er, eins og einn starfsmaður Hótels Hafnar komst að orði þegar hann var beðinn um að lýsa hverju fyrir augu hafði borðið þegar starfsfólk hótelsins mætti þar í fyrra “Þetta er ólýsanlegt og það féllu tár yfir fegurðinni sem skapaðist á Lóninu við flugeldalýsinguna” Sem sagt einstakur viðburður og kjörið fyrir þá sem ætla að vera heima um verslunarmannahelgina að fara í bíltúr að lóninu og sjá þennan stórfenglega viðburð. Fyrir þá sem ekki vita þá er um 40-50 mín. akstur frá Höfn til lónsins.





Skrifa athugasemd