Komið við á Horni
Annar áfangi í eyðibýlaskoðun Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar undir leiðsögn Sigurðar Hannessonar safnvarðar var heimsókn á eyðibýlið Horn í Nesjum. Ferðin að Horni var í framhaldi af ferðinni í Þórisdal í Lóni sem 11 krakkar tóku þátt í. Þegar komið er niður Almannaskarð og beigt út að Horni sjást nokkur dý neðan við veginn. Eitt þessara dýa heitir Fimmhundraðadý. Segir sagan að þar hafi hefðarkona nokkur horfið ofaní dýið með hesti og skrautklæðum sem metin voru á 500 dali og af því er komið heiti þess.
Hrikalegt og fagurt landslag er við bæinn Horn sem er ein af stæðstu jörðum í Nesjahreppi og hlunninda ríkust. Hlunnindin sem bændur á Horni höfðu voru trjáreki, selveiði,og dún og eggjatekjur í eyjum í Skarðsfirði. Eyjar þessar voru Mikley, Hellir, Borgey, Garðey og áður fyrr einnig Óslandið. Úrræði Nesjamanna var í Hornsvík langt fram á 19. öld og má enn sjá merki þess. Kolbeinshellir er í hlíðinni spölkorn ofan við þann stað sem verstöðin hefur verið. Snemma á 18. öld hafðist þar við maður að nafni Kolbeinn sennilega óbótamaður, og hafði hann atgeir sem hann varði sig með. Í miklu fárviðri 7.mars 1873 fórust 5 franskar fiskiskútur við Horn og Stokksnes og 31 skipbrotsmaður bjargaðist heim að Horni þar sem hlynnt var að þeim,sumir voru mikið slasaðir. Árið eftir sigldi franskt herskip inn á Hornsvík með gjafir til Eyjólfs bónda, voru þar með öll hugsanleg smíðatól, hefilbekkur einnig bátur ,heiðurspeningar og skrautleg heiðursskjöl. Fjöldi frásagna er til um Horn og sögur um atburði sem þar hafa orðið.
Stórt og mikið hús er uppistandandi á Horni og eru ófáir skólahóparnir sem komið hafa og skoðað það og reynt að sjá svolítið inn í fortíðina meðan hlustað er á frásagnir frá staðnum.
Þessi sögubrot frá Horni og Þórisdal eru fengin frá Sigurði Hannessyni en þau eru agnarlítið sýnishorn af þeim fróðleik sem krakkarnir í skoðunarferðunum fá.




Skrifa athugasemd