Ágúst

Bílvelta á Austurfjörum

Bílvelta á Austurfjörum - 31.08.2003 Ágúst

Lítill fólksbíll valt á veginum á Austurfjörum á föstudagskvöldið. Bíllin fór tvær veltur og stöðvaðist á toppnum. Í bílnum voru fjórir ungir menn og aðeins ökumaðurinn hlaut minni háttar skurði sem gert var að á heilsugæslustöðinni. Ökumaður og farþegi í framsæti voru í beltum og er ekki vafi á að beltin hafa bjargað því að ekki fór verr. Að sögn farþega var orsök slyssins of hraður akstur miðað við aðstæður þannig að ökumaður missti stjórn á bílnum. Lesa meira
 
Þær eru samt lang flottastar

Sindri silfurlið í 1. deild kvenna - 30.08.2003 Ágúst

Í dag léku til úrslita í 1. deild kvenna Sindri og Fjölnir. Leikurinn fór fram á Hvolsvelli við ágætar aðstæður. Hvorugu lið tókst að setja mark í venjulegum leiktíma en þrátt fyrir það þá var leikurinn hin besta skemmtun. Í framlengingu gekk hvorki né rak, fínn bolti, góð skemmtun en engin mörk. Þá var komið að vítaspyrnukeppni og þar voru Fjölnisstelpur sterkari og lauk leiknum 3 – 2. Sindraskvísur eru því silfurlið 1. deildar sem er glæsilegur árangur. Til hamingju stelpur. Lesa meira
 
Unnsteinn Guðmundsson og Gunnar Ágeirsson ásamt Sigurjóni  Þ. Árnasyni bankastjóra

Landsbankastjórar heimsækja útibúið á Hornafirði. - 29.08.2003 Ágúst

Eins og fram hefur komið hafa miklar breytingar verið gerðar í húsnæði útibús Landsbankans á Hornafirði. Í tilefni þess að þetta gerbreytta afgreiðslupláss er tilbúið og það formlega tekið í notkun bauð Landsbankinn Hornfirðingum að koma í dag þiggja veitingar og skoða aðstöðuna. Mættir voru á staðinn bankastjórar og stjórnendur Landsbankans og lýstu þeir ánægju sinni yfir hvað vel hafði til tekist með breytingarnar. Lesa meira
 
Gamli góði Sindrabær

Fer bíóið aftur í gang? - 29.08.2003 Ágúst

Í vor sem leið hættu einstaklingar sem til nokkurra ára höfðu rekið bíóið í Sindrabæ af miklum dugnaði rekstrinum. Hljótt hefur verið yfir bíóinu síðan en nú hefur sveitarfélagið ákveðið að auglýsa eftir áhugasömu fólki til að taka að sér rekstur bíósins í Sindrabæ. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að starfssemin fari aftur í fullan gang og líf og fjör færist á ný í bíósalinn. Lesa meira
 
Valgerður, Ingibjörg og Einar

Tónleikar í Nýheimum - 29.08.2003 Menning

Tónleikar verða haldnir á Höfn í Hornafirði sunnudaginn 7. september 2003, kl. 16:00 í Nýheimum. Þar koma fram listamennirnir Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran, Einar Jóhannesson, klarínettuleikari og Valgerður Andrésdóttir, píanóleikari og flytja þau verk m.a. eftir Atla Heimir Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Mozart, Puccini, McCabe og Gershwin. Lesa meira
 
Hluti af Drápsklettum

Fé fennti í kaf við Drápskletta - 29.08.2003 Ágúst

Í frétt á hornafjordur.is 28. ágúst er sagt “Nafnið Drápsklettar, mun eftir því sem best er vitað, vera tilkomið af því að hér áður fyrr hafi búfé verið slátrað við klettana.” Ekki mun þetta vera alls kostar rétt því samkvæmt örnefnaritgerð sem Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóra ritaði hefur hún eftir heimildarmönnum að Drápsklettar beri nafn sitt af því að fé fennti þar í kaf. Bestu þakkir fyrir ábendinguna. Lesa meira
 
Gunnar Hermannsson notar frídaginn til að leggja silungsnet

Fullt af fiski í firðinum - 29.08.2003 Ágúst

Það eru miklar breytingar í lífríkinu hér í Hornafirðinum á þessu ári segir Karl Sigurðsson (Kalli á Móhól) sem manna best þekkir til í firðinum. Það er fullt af fiski innan við ósinn, þar er t.d. ufsi sem ekki hefur sést hér árum saman, skrápkoli er farinn að koma í netin sem var algengur hér áður fyrr en hefur ekki sést undanfarin ár. Sama er að segja um lúruna það er orðið mikið af henni. Kalli segir að mikið meira af sjóbirtingi hafi gengið inn í fjörðinn í sumar en verið hefur og er þetta greinilega fiskur í uppvexti og það lofar góðu fyrir framtíðina. Lesa meira
 
Heimir Þór þurrkar fjallagrös

Hundrað kíló á fjórum dögum. - 28.08.2003 Ágúst

Heimir Þór Gíslason notaði veðurblíðuna í dag til að þurrka fjallagrösin sem hann týndi í sumar. Heimir fékk hundrað kg. af fjallagrösum á fjórum dögum þegar hann skrapp á grasafjall fyrr í sumar. Á leiðinni austur tók hann upp í bílinn göngu-ferðamann frá Tékklandi og þegar Tékkinn fékk að vita hvert Heimir væri að fara vildi hann endilega fara með á grasafjall .Leyfið fékk hann og var í tvo daga í grasatýnslu og fannst það ævintýri líkast að vera inn á Möðrudalsöræfum að týna fjallagrös Lesa meira
 
Glæsilegur tækjasalur í Sporthöllinni

Sporthöllin, ný líkamsræktarstöð á Hornafirði - 28.08.2003 Ágúst

Mánudaginn 1. september verður opnuð ný og glæsileg líkamsræktarstöð sem er til húsa að Álaugarveg 7. Það er Svafa Mjöll Jónasar sem stendur í þessari stórframkvæmd ásamt fjölskyldu sinni. Sporthöllin er í 400 fermetra húsnæði sem allt er nýuppgert og öll aðstaða eins og best verður á kosið. Öll tæki í Sporthöllinni eru ný og fór Svafa Mjöll til Þýskalandi og valdi tækin en Fitness Sport flutti þau inn. Lesa meira
 
Séð frá nýja vatnstanknum í blíðunni í morgun

Drápsklettaskógur eða Hafnarskógur? - 28.08.2003 Ágúst

Búið er að endurreisa og koma aftur á stað starfsemi Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og búið að kjósa nýja stjórn í félaginu. Næg verkefni eru framundan og er útivistarsvæði við Drápskletta þar efst á lista. Skógræktarfélagið er með tvö skógræktarsvæði til umráða, annað er í Haukafelli sem er í eigu félagsins, hitt er nýtt 25 hektara svæði við Drápskletta rétt austan við tjaldstæðið á Höfn. Það svæði leggur sveitarfélagið til í verkefni sem kallast landgræðsluskógar. Lesa meira
 
Birna, Halldóra og Christína á Seljavöllum

Uppskera vel yfir meðallagi. - 27.08.2003 Ágúst

Mjög vel lítur út með kartöfluuppskeru í Hornafirði í haust þrátt fyrir mikla vætutíð. Farið verður að taka upp úr görðum um og upp úr næstu mánaðarmótum. Nokkuð er síðan þau Hjalti og Birna kartöflubændur á Seljavöllum, sem eru með stærstu kartöfluframleiðendum í sýslunni, fóru að taka upp kartöflur og senda á markað. Vegna þess hvað voraði vel var snemma búið að setja niður í garða og nýjar kartöflur frá Seljavöllum voru komnar í búðir viku fyrr en í fyrra. Lesa meira
 
Þær eru samt lang flottastar

Er 3. deild karla merkilegri en 1. deild kvenna? - 27.08.2003 Ágúst

Núna eru liðnir góðir 16 tímar frá því að ljóst varð hvaða lið keppa til úrslita í 1. deild kvenna. Spennan magnast og krefjandi verkefni bíður tveggja góðra liða n.k. laugardag. Stelpurnar í Sindra og Fjölni hafa lagt mikið á sig til að komast þangað sem þær eru komnar og bæði lið vilja hampa Íslandsmeistaratitlinum í 1. deild og um leið fá öruggt sæti í úrvalsdeild kvenna næsta ár. En þó leikmönnum sem og stuðningsmönnum liðanna þyki þetta frábær árangur þá á það sama ekki við um íþróttafréttaritara stærstu netmiðlanna. Lesa meira
 
Hverjar eru bestar

Komnar í úrslitaleikinn - 26.08.2003 Ágúst

Mfl. kvenna hjá Sindra náði þeim stórkostlega áfanga í dag að komast í úrslitaleik 1. deildar. “Skaðræðiskvendin” hjá Sindra lögðu RKV að velli 3 - 1. Leikurinn var góð skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á völlinn. Guðný Guðleif Einarsdóttir skoraði fyrsta markið og Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir skoraði síðan tvö mörk. Með sigrinum þokast stelpurnar skrefi nær úrvalsdeildinni en nú bíður þeirra úrslitaleikurinn í 1. deild kvenna sem verður gegn Fjölni Grafarvogi n.k. laugardag kl. 14:00. Lesa meira
 
Í þá gömlu góðu daga!

Landað 5 tonnum af sandkola! - 26.08.2003 Ágúst

Nú fer nýtt kvótaár að ganga í garð og Fiskistofa búin að gefa út úthlutun aflaheimilda. Hornafjörður fær í sinn hlut 4,1% af úthlutuðu aflamarki eða 15.250 tonn. Í kvóta úthlutun er Skinney-Þinganes í 10. sæti á landsvísu og fær í sinn hlut 9.920 þorskígildistonn sem er 2,6% af heildinni. Í útgefnum aflatölum Fiskistofu kemur fram að á Hornafirði var landað 33.965 tonnum fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma árið 2002 var aflinn 41.200 tonn. Mestu munar um loðnuna, en árið 2002 var aflinn á þessu tímabili 30.652 t. en 20.268 t. árið 2003. Lesa meira
 
Til alls líklegar

Skaðræðiskvendin klárar í slaginn - 26.08.2003 Ágúst

Í dag kl. 18:00 taka “Skaðræðiskvendin” í mfl. Sindra á móti liði RKV í seinni leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildar kvenna á Sindravöllum. Fyrri leiknum lauk með 1 – 1 jafntefli í Sandgerði og því dugir okkar stelpum markalaust jafntefli til að komast í úrslitabaráttuna um laust sæti í úrvalsdeildinni. Þó svo að 0 – 0 jafntefli dugi þá munu “Skaðræðiskvendin” örugglega leika til sigurs í þessum mikilvæga leik enda ekki gæfulegt að liggja til baka og reyna að halda svo naumu forskoti. Lesa meira
 
Falkon 900 þota á Hornafjarðarflugvelli

Erlendir aukýfingar á Hornafirði. - 26.08.2003 Ágúst

Þota af gerðinni Falkon 90 kom til Hornafjarðar sl. laugardag og var þar til kvölds. Þar voru á ferð 10 erlendir auðkýfingar sem fengu leigðan bíl hjá Guðbrandi Jóhannssyni til að fara upp á jökul og suður að Jökulsárlóni þar sem farið var í siglingu um lónið. Íslenskur fararstjóri var með hópnum. Veður var eins og best var á kosið og var ferðin mjög góð auglýsing fyrir Hornfirska náttúrufegurð. Þetta er önnur Falkon þotan sem kemur til Hornafjarðar í sumar. Lesa meira
 
Nemendur og kennarar í FAS grilluðu í blíðunni

Stóð á bekk við skólasetningu - 25.08.2003 Ágúst

Í dag voru skólarnir í Hornafirði settir og flykktust nemendur og foreldrar í skólana í blíðskapar veðri, sólskini og 16 stiga hita. Vegna blíðunnar góðu var t.d. Nesjaskóli settur utandyra og steig Þorvaldur skólastjóri upp á bekk á lóðinni og sýndi jafnvægislistir um leið og hann bauð nemendur velkomna. Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu var slegið upp grillveislu fyrir utan skólann í hádeginu og var mikil ánægja hjá nemendum sem og kennurum með veisluna. Lesa meira
 
Árni og Gunna Steina, hress að vanda

Landsbankinn opnar eftir breytingar - 25.08.2003 Ágúst

Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði Landsbanki Íslands á Hornafirði, eldri hluti hússins hefur verið seldur en gagngerar breytingar hafa verið unnar á þeim hluta sem afgreiðsla bankans verður í. Skipt hefur verið um allar innréttingar, tæki öll endurnýjuð og húsnæðið allt verið tekið í gegn og kemur þessi breyting mjög vel út. Þrátt fyrir að húsnæði bankans minnki þá mun þjónustan sem hann veitir Hornfirðingum ekki skerðast og í raun er verið að svara kröfum og þörfum nútímans í bankaþjónustu með þessum breytingum. Eins og áður mun verða kappkostað að veita góða og persónulega þjónustu innan veggja bankans. Lesa meira
 
Golfvöllurinn skartar sínu fegursta

Lengsta höggið lenti heima í garði - 25.08.2003 Ágúst

Í sumarblíðu um helgina fór fram hið árlega Hótel Hafnar golfmót og var þar m.a. keppt í því hver gat skotið lengst og var það Ásta Birna Magnúsdóttir frá Glofklúbbi Djúpavogs sem skaut lengst kvenna en Halldór Sævar Birgisson skaut lengst karla. Þess má geta að Héðinn Sigurðsson sló lengsta höggið og lenti kúlan í garðinum heima hjá honum sem er við golfvöllinn en það telst ekki með þar sem boltinn lenti utan vallar. Lesa meira
 
Hofgarður Öræfum

Skólasetning í Öræfum og Suðursveit - 24.08.2003 Ágúst

Mánudaginn 25. ágúst verða grunnskólarnir að Hrollaugsstöðum í Suðursveit og Hofgarði í Öræfum settir. Í Öræfum verða nemendur 12 sem er sami fjöldi og á síðasta skólaári. Kennarar eru fjórir og að auki tveir starfsmenn sem sjá um eldhús og þrif. Leikskóli er einnig rekin í Hofgarði og verða líklega um tíu börn í leikskólanum og tveir starfsmenn. Lesa meira
 
Þær ætla sér sigur

Fallnir í 3. deild - 23.08.2003 Ágúst

Í dag áttust við í 2. deild karla Sindri og ÍR og var leikurinn í Reykjavík. Okkar menn urðu að vinna þennan leik til að halda í vonina um að halda sér í 2. deild. Ekki gekk sú von eftir og lauk leiknum með sigri ÍR 3-2. Það er því ljóst að á næsta ári leikur Sindri í 3. deild, svo skemmtilegt sem það nú er. Ekki skulu menn samt örvænta heldur taka höndum saman og byrja strax að undirbúa baráttuna til að endurheimta sæti í 2. deild. Lesa meira
 
Liðsmenn Mikaels ehf á Ólafsfirði

Mikael ehf að ljúka brúarframkvæmdum í Ólafsfirði. - 23.08.2003 Ágúst

Hornfirska verktakafyrirtækið Mikael ehf er að leggja síðustu hönd á brúarsmíði yfir Ólafsfjarðar ós. Brúin yfir Ósinn 40 m. löng og kostar 32 milljónir kr. Gunnar Gunnlaugsson einn eiganda Mikaels sagði að verkið hefði gengið vel, þetta væri svona arkitekta brú og dálítið falleg. Brúin kemur að góðu gagni þegar farið verður að grafa göngin til Siglufjarðar og vegasamband kemst á í gegnum þau. Lesa meira
 
Glæsilegt skólahús

Skólasetning hjá FAS á mánudaginn - 22.08.2003 Ágúst

Nú styttist í að framhaldsskólanemar setjist á skólabekk og verður Framhaldskólinn í Austur-Skaftafellssýslu settur mánudaginn 25. ágúst kl. 8:00 og hefst kennsla sama dag kl. 10:00. Þetta er í 17 skipti sem skólinn er settur og eru skráðir nemendur í dagskóla 90 en síðan er töluverður fjöldi sem stundar fjarnám við skólann. Þokkalega hefur gengið að ráða í stöður við skólann en alls starfa 8 kennarar og 4 stundakennarar við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu. Lesa meira
 

Lengd viðvera fyrir yngstu nemendurna - 22.08.2003 Hafnarskóli fréttir

Á komandi skólaári mun verða boðið upp á lengda viðveru hjá börnum í 1. - 4. bekk grunnskólanna á Hornafirði. Sveitarfélagið ákvað að bjóða upp á þessa auknu þjónustu til að koma á móts við óskir foreldra. Fyrsta skóladaginn koma börnin í fylgd foreldra en síðan mun börnum úr Nesjaskóla verða ekið með skólarútunni í Hafnarskóla. Lesa meira
 
Vinna við Kotá

Brúin á Kotá í hættu - 22.08.2003 Ágúst

Mikill vöxtur og aurframburður hefur verið í Kotá í Öræfum undanfarið og hefur áin flætt yfir brúna þegar verst hefur látið. Brúin hefur alveg farið í kaf og er í hættu segir Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Það er unnið við að moka og moka efni úr ánni nótt og dag og gengur ekki vel að ráða við þennan mikla framburð af grjóti og möl. Það hefur verið mikið í öllum jökulám hér suðaustan-lands vegna hlýindanna og það hafa komið smá hlaup í Kotá. Það eru Hjarðarnesbræður (Rósaberg ehf) sem hafa verið við moksturinn upp úr Kotá Lesa meira
 
Ragnheiður sérkennslufulltrúi

Nýr sérkennslufulltrúi - 21.08.2003 Fréttir

Ragnheiður Jóhannsdóttir hefur verið ráðin sérkennslufulltrúi í stað Ragnhildar Jónsdóttur. Ragnheiður er uppalin á Sauðárkrók en kemur til Hornafjarðar frá Borgarnesi þar sem hún átti heima og starfaði í 22 ár. Í Borgarnesi starfaði hún við kennslu og sérkennslu við grunnskólann í 12 ár og kennsluráðgjöf hjá Fræðsluskrifstofu Vesturlands í 10 ár. Ragnheiður gekk í Samvinnuskólann á Bifröst og varð síðan stúdent frá Samvinnuskólanum í Reykjavík. Kennarapróf tók hún frá KHÍ 1981 og sérkennarapróf frá sama skóla árið 2003. Lesa meira
 
Óðinn Eymundson við veiðar í Laxá í Nesjum

Eitt best geymda leyndarmálið rétt við bæjardyrnar - 21.08.2003 Ágúst

Hverjum hefði dottið í hug að Laxá í Nesjum yrði ein af vinsælustu laxveiðiám landsins, Undanfarin ár hefur verið sleppt um 5-9 þúsund seiðum í ána og er sú slepping að skila sér. Í fyrra veiddust þar 135 laxar og þar af töluvert af stórlaxi. Í dag hafa 40 laxar verið dregnir á land og er algengt að þeir séu um 10 pund. Veiðitímabilið í Laxá stendur frá 1. júlí - 30. september er því aðeins búinn 1/3 af tímabilinu og besti tíminn framundan enda mikill lax í ánni. Lesa meira
 
60 tonn og fór létt með það

Lyfti 60 tonnum! - 20.08.2003 Ágúst

Allt er í fullum gangi við að skipa út tækjum og tólum úr bræðslunni í Óslandi sem fara eiga í bræðsluna í Grindavík. Flutningaskipið sem flytur tækin til Grindavíkur mun síðan koma til baka með gömlu tækin úr bræðslunni í Sandgerði. Fjöldi manns hefur unnið að því að koma tækjunum í skip ásamt öflugum vélakosti. Stærsta tækið sem híft var um borð er þurkarinn, en hann vegur hvorki meira né minna en 60 tonn. Lesa meira
 
Brynja húsfreyja í Grænahrauni

Góð rifsberjaspretta í Hornafirði en minna um krækiber - 20.08.2003 Ágúst

Nú er sá tíma að fólk fer að huga að berjatínslu, taka til krukkur og krúsir sem safnað hefur verið undir berjasultu og hlaup. Það er að frétta úr Suðursveit að þar sé lítið af bláberjum og krækiberjum og þau séu á mjög takmörkuðu svæði en samkvæmt upplýsingum frá Fjölni bóndi á Hala þá segir hann að en þau sem finnast séu vel þroskuð. Lesa meira
 
Hann er flottur nýi brunastiginn

Endurbætur á Heppuskóla - 19.08.2003 Ágúst

Þó nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði Heppuskóla sem fagnaði 30 ára afmæli á þessu ári. Þar er helst til að telja að í setustofu nemenda hafa verið brotnir niður veggir og aðstaðan öll því opnari og skemmtilegri. Kennslustofur hafa verið stækkaðar og kemur það bæði nemendum sem og kennurum til góða, meira pláss betri líðan! Lesa meira
 
Útafkeyrsla við Blábjörg

Sjö umferðaslys á nokkrum dögum - 19.08.2003 Ágúst

Undanfarna daga hafa orðið sjö umferðaslys þar af tvö banaslys á svæðinu frá Egilsstöðum vestur á Breiðamerkursand. Fimm af þessum slysum eru vegna lausamalar og í öllum nema einu er um erlenda ökumenn að ræða. Reynir Arnórsson Umferðaöryggisfulltrúi hefur kannað aðstæður á öllum þessum slysstöðum. Lesa meira
 
Sigurvegarar 1. deild B riðill

Sindrastúlkur sigurvegarar í 1. deild kvenna B riðill - 18.08.2003 Ágúst

Mfl. kvenna lagði Fjarðarbyggð 2 – 1 á Eskifjarðarvelli s.l. laugardag og tryggðu sér þar með toppsæti riðilsins. Þetta er frábær árangur hjá stelpunum og verður gaman að fylgjast með þeim í úrslitakeppninni sem hefst laugardaginn 23. ágúst með útileik gegn RKV. Þriðjudaginn 26. ágúst leika síðan þessi sömu lið á Sindravöllum og það liðið sem stendur uppi sem sigurvegari úr þessum rimmum leikur til úrslita um deildarmeistaratitilinn í 1. deild laugardaginn 30. ágúst. Þetta er spennandi og krefjandi verkefni sem stelpurnar standa frammi fyrir og kallar á allan þann stuðning sem bæjarbúar geta veitt. Lesa meira
 
Skaftárbrú við Kirkjubæjarklaustur

Framkvæmdir hafnar við byggingu Skaftár-brúa - 18.08.2003 Ágúst

Hafnar eru framkvæmdir við byggingu á tveim brúm með vegtengingu yfir Skaftá við Kirkjubæjarklaustur. Verktaki við jarðvinnslu við ána er Rósaberg ehf. á Hornafirði, og eru þeir búnir að loka þeim hluta árinnar sem rennur undir brúna sem er nær Kirkjubæjarklaustri. Þegar lokið er byggingu þeirrar brúar verður ánni veitt undir hana meðan seinni brúin er byggð. Lesa meira
 
Katharina upp á Leiðarhöfða

Ferðamenn allstaðar - 15.08.2003 Ágúst

Mikill fjöldi ferðafólks er á Hornafirði þessa dagana, rútur og smærri fólksflutningabílar eru hreinlega út um allan bæ. Bærinn iðar af lífi og tungumálaflóran er fjölbreytt. Ekki skemmir blíðan fyrir og vonandi helst hún sem lengst, hvað sem veðurfræðingarnir segja. Óslandið, höfnin og Leiðarhöfði eru staðir sem draga að sér ferðamennina og má oft sjá ótrúlegan fjölda fólks á þessum stöðum. Lesa meira
 
Lúlli og Óli Einars sprækir í lauginni

Í sund alla daga - 15.08.2003 Ágúst

“Sundlaug Hornafjarðar er kannski ekki stórt mannvirki en hún er gott mannvirki og án sundlaugar viljum við ekki vera” þetta sagði einn af sundköppum Hornafjarðar fyrir nokkrum árum og brosti sínu blíðasta. Á þessu ári hafa heldur færri farið í sund en árið 2002. Athygli vekur að erlendir ferðamenn eru ekki eins áberandi í lauginni og undanfarin ár en á móti kemur töluverð fjölgun innlendra ferðamanna. Lesa meira
 
Hrund í fallegri lopapeysu

Líf og fjör í Pakkhúsinu - 14.08.2003 Ágúst

Í Pakkhúsinu, sem staðsett er við höfnin á Hornafirði er Handraðinn, félag handverksfólks á Höfn til húsa með sína verslun. Þar ræður ríkjum Hrund Jónsdóttir starfsmaður Handraðans. Hrund sagði að aðsókn hefði verið mjög góð í júní og júlí en heldur fer að draga úr aðsókninni þegar kemur fram í ágúst. Pakkhúsið er opið frá kl. 13 til 18 alla daga. Lesa meira
 
Arnbjörg klár í slaginn

Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera - 14.08.2003 Hafnarskóli fréttir

Hafnarskóli verður settur mánudaginn 25. ágúst og hefst kennsla þriðjudaginn 26. ágúst. Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri sagði að nemendur yrðu 163 sem er 7 nemendum færra en á seinasta skólaári og hafa nemendur ekki verið færri frá því grunnskólinn á Hornafirði var þrískiptur. Búið er að ganga frá ráðningu starfsfólks og verða kennarar 17 talsins að meðtöldum stjórnendum, þar af eru sjö leiðbeinendur en fjórir þeirra eru í kennaranámi. Lesa meira
 
Dómarinn sýndi líka snilldartakta

Sigrar á nýju grasi - 13.08.2003 Ágúst

Í blíðskapar veðri lék 5. flokkur karla hjá Sindra fyrsta leikinn á Íslandsmóti sem leikinn er á nýju grassvæði á Sindravöllum. Leikurinn var leikur A liðs Sindra og KBS og lauk með sigri okkar stráka 6 – 3, strax á eftir léku B lið félaganna og lauk þeim leik með 13 – 1 sigri Sindra. Glæsilegur endir á fínu sumri hjá strákunum og gaman að sjá hversu margir áhorfendur mættu á leikina og hvöttu okkar menn. Lesa meira
 
Rafstöðin í Þorgeirsstaðrá skoðuð

Út í óvissuna - 13.08.2003 Menning

Óvissuferð var farin á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í gær og fóru 16 börn í ferðina. Ekkert þeirra vissi fyrirfram hvert leiðin lá. Ekið var upp á Dalsheiði í Lóni, gengið að Svarthamravatni þar sem rennt var fyrir fisk. Því miður var aflinn lítill, ekki nema eitt hornsíli. Einnig voru týnd ber og farið í göngutúra. Á heimleiðinni var kíkt á gömlu rafstöðina í Þorgeirsstaðaá. Lesa meira
 
Gestur við tölvuna góðu

Sindri hagnast á tippinu - 13.08.2003 Ágúst

Tippstofa Sindra hefur verið starfrækt af krafti s.l. ár undir öruggri handleiðslu Gests Halldórssonar, sem einn ber nafnið “getspakur” með réttu. Á þessu rúma ári hefur orðið algjör viðsnúningur í tekjum knattspyrnudeildar Sindra af getraunum og er Sindri í 11 sæti á landinu í sölu getrauna það sem af er þessu ári með 215.338 raðir. Miklu munar um allan þann fjölda sem tippar í gegnum tölvu Sindra á Tippstofunni enda fær knattspyrnudeild í sinn hlut 38% af sölunni. Lesa meira
 
Meðlimir Glófaxa, Bjössa Jóns vantar á mynd

Hornfirðingar eignast Íslandsmeistara í Póló - 12.08.2003 Ágúst

Á Einarsstaðamóti sem var haldið var á Einarsstöðum í Aðaldal síðustu helgi fór fram Íslandsmeistaramót í Póló og er það í fyrsta skipti sem slíkt mót er haldið hér á landi. Það voru okkar menn í Útreiðarfélaginu Glófaxa sem báru sigur úr bítum eftir harða keppni. Um 1000 manns voru saman komin á Einarsstöðum í blíðskapar veðri og var samdóma álit þátttakenda að vel hafi til tekist. Lesa meira
 
Þorvaldur skipstjóri og Hulda stýrimaður, þau stýra skútunni

Allt að verða klárt í Nesjaskóla - 11.08.2003 Ágúst

Nesjaskóli verður settur mánudaginn 25. ágúst kl. 10:30, skólastarf hefst síðan samkvæmt stundarskrá þriðjudaginn 26. ágúst. Nemendur verða 115 sem er fjölgun um fjóra frá síðasta skólaári, 44 nemendur munu hefja skólagöngu í 1. bekk í haust og verður bekknum skipt í þrjár kennsludeildir. Búið er að ráða allt starfsfólk við skólann. Þessa dagana er unnið hörðum höndum að viðhaldi og breytingum á skólahúsnæðinu. Helstu breytingar eru að eldvarnarhurðir hafa verið settar upp og aðgengi fatlaðra bætt. Lesa meira
 

Banaslys á Breiðamerkursandi - 11.08.2003 Ágúst

Jeppi með 6 erlendum ferðamönnum fór útaf veginum á þjóðvegi 1 milli Jökulsárslóns og Kvískerja, á öðrum tímanum í dag. Kona lést og þrír til viðbótar eru mikið slasaðir en tveir minna. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti hún hina slösuðu til Reykjavíkur. Einnig voru kallaðar út tækja- og sjúkrabifreiðar frá Höfn, Öræfum og Kirkjubæjarklaustri auk björgunarsveita. Tildrög slyssins eru enn óljós. Í bílnum var fjölskylda frá Barcelona á Spáni sem var á hringferð um landið og var að koma frá Skaftafelli á leið austur. Lesa meira
 
Þetta er framtíðin. 5. flokkur Sindra 2002

2. deild karla: Víðir - Sindri 2-0 - 11.08.2003 Ágúst

Leikur Sindra og Víðismanna var spilaður á góðum Garðsvelli í rigningu á laugardaginn. Leikurinn fór sæmilega af stað fyrir Sindramenn, þeir voru meira með boltann og fengu nokkrar hornspyrnur en náðu ekki að skapa sér færi. Björn komst næst því að skora í fyrri hálfleik þegar hann átti skot rétt framhjá marki Víðismanna. Um miðbik fyrri hálfleiks komust Víðismenn inn í leikinn og skoruðu á 37.mín. mark úr eina færi sínu í fyrri hálfleik. Lesa meira
 
Ljúfir tónar

Kammersveitin Ísafold í Nýheimum! - 11.08.2003 Menning

Dagana 14. - 21. ágúst mun kammersveitin Ísafold ferðast um landið og halda tónleika á sjö stöðum. Fyrstu tónleikarnir eru í Nýheimum á Höfn þann 14. ágúst. Ísafold er skipuð 17 ungum tónlistarmönnum sem stundað hafa framhaldsnám í tónlist og hafa þegar skarað fram úr á sínu sviði. Á efnisskránni eru nokkur af öndvegisverkum 20. aldar sem sjaldan hafa heyrst hér á landi. Flutt verða 6 verk eftir jafn mörg tónskáld Lesa meira
 
Flott safn í Gömlubúð

Byggðasafnið í Gömlubúð, góð aðsókn - 11.08.2003 Ágúst

Jöfn og góð aðsókn hefur verið að byggðasafninu í Gömlubúð í sumar. Föstudaginn 8. ágúst voru gestir orðnir 2.939 sem er svipaður fjöldi og á samatíma í fyrra. Frítt hefur verið á safnið í sumar og hafa gestir verið mjög ánægðir með það og um leið undrandi og þakklátir yfir rausnarskap og góðmennsku Hornfirðinga. Almennt er fólk mjög hrifið af safninu enda er öllu þar haganlega fyrir komið og snyrtimennskan í fyrirrúmi bæði innanhúss sem og utan. Lesa meira
 
Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Komnar í úrslit 1. deildar kvenna - 10.08.2003 Ágúst

Ekkert varð af fyrirhuguðum leik Sindra og Leifturs/Dalvík í fyrstudeild kvenna sem fram átti að fara á Sindravöllum kl. 15:00 í dag, lið þeirra norðan stúlkna mætti ekki til leiks og telst því leikurinn tapaður hjá þeim 3 – 0. Í gær keppti lið Leifturs/Dalvík við Leikni á Fáskrúðsfirði og töpuðu 2 – 1. Eftir þann leik treystu þær sér ekki að keyra til Hornafjarðar frá Fáskrúðsfirði og ástæðan sögð vera meiðsli leikmanna! Lesa meira
 
Þær eru bara flottastar

Úrvalsdeildin, ekki fjarlægur draumur! - 09.08.2003 Ágúst

Sunnudaginn 10. ágúst kl. 15:00 mun hið magnaða lið Sindra í mfl. kvenna taka á móti Leiftur/Dalvík í 1. deild kvenna B riðli. Sindri vann fyrri leikinn á Ólafsfirði 4 – 3 og eflaust vilja þær gera enn betur núna og sýna stuðningmönnum liðsins svo ekki verði um villst að þær hafi fullan hug á að leika í úrvalsdeildinni á næsta ári og spreyta sig meðal þeirra bestu. Lesa meira
 
Lögreglan á Höfn við eftirlitsstörf

Herör gegn lax og göngusilungsveiðum um helgar - 08.08.2003 Ágúst

Settur sýslumaður á Höfn Úlfar Lúðvíksson hefur skorið upp herör gegn netaveiðum um helgar. Segir lögreglan á Höfn að töluvert sé um að veiðimenn virði ekki bannið og hafi net sín úti yfir helgar. Lögreglunni hafa borist ábendingar um að þessi lög séu ekki virt og því hefur verið gripið til þess ráðs að herða eftirlit með veiðinni. Lögin segja að allur lax og göngusilungur skal vera friðaður gegn allri veiði annarri en stangaveiði frá kl.22:00 á föstudagskvöldi til kl.10:00 á þriðjudagsmorgni. Lesa meira
 
Skólastjóri með nokkrum starfsmönnum og framtíðar nema skólans

Heppuskóli, allt að verða klárt krakkar - 08.08.2003 Heppuskóli fréttir

Undirbúningur er komin í fullan gang fyrir komandi vetur sagði Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla enda styttist óðum í að nemendur setjist á skólabekk og þá þarf allt að vera klárt. Búið er að ráða í allar stöður við skólann en breytingar á starfsliði eru töluverðar enda fjórir kennarar í barnsburðarleyfi. Reiknað er með að nemendur í vetur verði tæplega 140 sem er fjölgun frá seinasta skólaári. Lesa meira
 
Á ferð með Austurleið

Kynnisferðir og Austurleið-SBS sameinast - 07.08.2003 Ágúst

Kynnisferðir og Austurleið-SBS undirrituðu 1. ágúst s.l. kaupsamning þar sem Kynnisferðir kaupa upp nánast allt hlutafé í Austurleið-SBS. Nafn nýja félagsins verður Kynnisferðir og framkvæmdastjóri þess er Stefán Eyjólfsson. Ekki eru fyrirhugaðar miklar breytingar á starfsmannahaldi við sameininguna. Þetta kemur meðal annars fram í fréttatilkynningu frá Kynnisferðum. Lesa meira
 
Smáhýsi á tjaldstæðinu á Höfn

Smáhýsin vinsæl á tjaldstæðinu - 07.08.2003 Ágúst

Fimmtudaginn fyrir Humarhátíð nánar tiltekið 3. júlí kl. 14:00 voru fyrstu smáhýsin tilbúin á tjaldstæðinu á Höfn, núna rúmlega mánuði seinna eru húsin orðin 5 og innan fárra daga mun sjötta og síðasta húsið verða flutt á tjaldstæðið. Húsin voru flutt inn ósamansett frá Finnlandi og hafa eigendur sjálfir séð um samsetningu á þeim. Það er fyrirtækið Náttból ehf sem á og rekur húsin en Náttból er í eigu 7 einstaklinga á Hornafirði. Hjónin Hugi Einarsson og Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir sem hafa með höndum rekstur tjaldstæðisins sjá um útleigu og þrif á húsunum. Lesa meira
 
Páll Sveinsson

Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson á Hornafjarðarflugvelli - 06.08.2003 Ágúst

Douglas-flugvél Landgræðslunnar Páll Sveinsson kemur til Hafnar n.k. laugardag 9. ágúst og gefst þá öllum tækifæri á að skoða þennan merkisgrip á Hornafjarðarflugvelli frá kl. 12:30 til 14:30. Eins og elstu menn muna þá þjónaði þessi flugvélartegund Hornfirðingum hér á árum áður og þótti ein af bestu flugvélum sem völ var á. Vélarnar gengu undir nafninu Þristurinn (Doglas DC3) og notuðu þær Melaflugvöll sem staðsettur var við Melatanga á Suðurfjörum og síðar Árnanesflugvöll eftir að hann var tekinn í notkun. Lesa meira
 
Tæki koma og fara

Breytingar á bræðslunni í Óslandi - 06.08.2003 Ágúst

Þessa dagana er verið að fjarlægja nýlegan loftþurrkara úr bræðslunni í Óslandi en þurrkarinn hefur verið seldur Samherja og fer væntanlega til Grindavíkur. Í staðinn koma fjórir gufuþurrkarar sem keyptir voru úr verksmiðjunni í Sandgerði. Að sögn Aðalsteins Ingólfssonar stjórnarformanns Skeggeyjar ehf. sem á og rekur bræðsluna er þetta liður í að byggja upp rekstrarhæfari og sterkari einingu og um leið að tryggja framtíð bræðslunnar. Lesa meira
 
Frábært dómaratríó!

Tökum nú á drengir, enn er von - 06.08.2003 Ágúst

Laugardaginn 9. ágúst mun mfl. karla hjá Sindra keppa við Víðir í Garði í 2. deildinni á Garðsvelli. Víðir er sem stendur í 7. sæti með 17 stig en okkar menn verma botnsætið með 6 stig. Með sigri í þessum leik og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum helgarinnar gætu okkar menn losnað úr botnsætinu og farið að narta í hælana á liðinu í 8. sæti. Lesa meira
 
Í sólinni í Skaftafelli

Að lokinni verslunarmannahelgi - 05.08.2003 Ágúst

Nú er verslunarmannahelgin að baki og við tekur löng bið í næsta lögboðna frídag! Umferðin gekk vel fyrir sig í og við Hornafjörð að sögn lögreglu og bílstjórar sýndu almennt góða tillitsemi í umferðinni. Töluverður fjöldi ferðamanna gisti á tjaldstæðum í sveitarfélaginu og naut lífsins í kyrrð og ró fjarri glaumi og gleði útihátíðanna. Lesa meira
 
Flugeldasýning á Jökulsárlóni

“Eitt það flottasta sem ég hef á ævinni séð - 04.08.2003 Ágúst

Um 1200 manns mættu á Jökulsárlónið til að verða vitni að flugeldasýningunni sem þar fór fram um miðnætti á laugardagskvöld. Þegar gestir mættu á staðinn þá bar fyrir augu upptendrað Jökulsárlónið þar sem búið var að kveikja á stórum kertum sem staðsett voru á jöklum vítt og breytt um lónið. Veðurguðirnir létu ekki sitt eftir liggja og buðu upp á bestu veðurskilyrði fyrir sýninguna. Lesa meira
 
Umferðareftirlitið skoðar hjálma hjá krökkum

Krakkar á Höfn duglegir að nota reiðhjólahjálma - 04.08.2003 Ágúst

Reynir Arnórsson umferðaöryggisfulltrúi kannaði í síðustu viku hversu margir krakkar á Höfn notuðu hjálma þegar þeir væru á hjóli. Fór hann á íþróttavöll Sindra eftir hádegi þar sem ungir fótboltamenn ásamt þjálfara sínum voru að æfa. Sex þeirra höfðu komið á hjólum sínum og voru allir með hjálma, sem voru snyrtilega hengdir á hjólin meðan verið var á æfingunni Lesa meira
 
Flugeldar á Jökuslárlóni

Flugeldasýning á Jökuslárlóni um helgina - 01.08.2003 Ágúst

Nú hefur Einar Björn Einarsson staðarhaldari á Jökulsárlóni látið undan þrýstingi og býður öllum sem það vilja að koma og verða vitni að hinni árlegu flugeldasýningu á Jökulsárlóni sem fer fram laugardagskvöldið 2. ágúst á miðnætti. Sýningin er í boði Jökulsárlónsins. Lesa meira
 
Vetur, börn að leik eftir Ásgrím Jónsson

Austfirskt landslag í íslenskri myndlist í Pakkhúsinu á Höfn - 01.08.2003 Menning

Málverkasýning sem er samstarfsverkefni Stofnunar Gunnars Gunnarssonar og Menningarmiðastöðvar Hornafjarðar stendur nú yfir í Pakkhúsinu á Höfn, en áður var hún til sýnis á Skriðuklaustri. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur valdi verkin á sýninguna og ritaði texta fyrir sýningarskrá, sem er til sölu á staðnum. Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma Pakkhússins alla daga kl. 13-18 og hún mun standa fram í miðjan september. Lesa meira
 
Á tröppum eins Hornsbæjarins

Komið við á Horni - 01.08.2003 Ágúst

Annar áfangi í eyðibýlaskoðun Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar undir leiðsögn Sigurðar Hannessonar safnvarðar var heimsókn á eyðibýlið Horn í Nesjum. Ferðin að Horni var í framhaldi af ferðinni í Þórisdal í Lóni sem 11 krakkar tóku þátt í. Þegar komið er niður Almannaskarð og beigt út að Horni sjást nokkur dý neðan við veginn. Eitt þessara dýa heitir Fimmhundraðadý. Segir sagan að þar hafi hefðarkona nokkur horfið ofaní dýið með hesti og skrautklæðum sem metin voru á 500 dali og af því er komið heiti þess. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica