Ríki Vatnajökuls - Júlí
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
Fyrir 50 árum í Skaftafelli
      <description>Nýlega var haldin minningarathöfn við Skaftafellsjökul og settur upp minnisvarði um tvo breska stúdenta sem fórust á Öræfajökli 1953. Það er Íslandsvinurinn Dr.Jack D.Ives sem lét setja upp þennan minnisvarða um tvo félaga sína sem fórust í rannsóknarleiðangri á Öræfajökli 1953.Viðstaddir athöfnina,ásamt fleirum, voru fjölskylda Dr. Jack ásamt fimm félögum hans úr leiðangrinum forðum.</description>
Skoðunarferð að Þórisdal í Lóni
      <description>Þann 29. júlí fóru 11 hressir krakkar í eyðibýlaskoðn á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Leiðsögumaður var Sigurður Hannesson safnvörður. Ekið var að Þórisdal í Lóni og merkir staðir á leiðinni skoðaðir eða saga þeirra sögð. Veður var eins og á sönnum sumardegi 20° C og sólskin. Í Þórisdal var oft margbýlt á fyrri öldum en Jökulsá eyddi miklu gróðurlendi, þar á meðal túni svo búsetuskilyrði rýrnuðu mikið en mest urðu þau landsspjöll á fyrri hluta 18. aldar.</description>
Ljósmyndakeppni Sparisjóðanna
      <description>Í sumar efna sparisjóðirnir til ljósmyndakeppni  fyrir þá krakka sem eru félagar í Króna og Krónu  og Speki klúbbunum. Króna og Króni er klúbbur fyrir krakka upp að sjö ára aldri.  Speki er nýr klúbbur Sparisjóðsins fyrir krakka á  aldrinum  8-11 ára  sem finnst gaman að spegúlera í öllum heimsins ráðgátum og vilja hafa fjármálin sín á hreinu og snemma beygist krókurinn að því sem verða  vill og því eins gott að hafa peningamálin á hreinu.</description>
Meistaraflokkur til slátrunar
      <description>Það var á glæsilegum leikvangi Fjölnismanna sem algerlega andlaust lið Sindramanna sem mætti til sláttrunar. Fjölnir tók strax öll völd á vellinum og voru búnir að eiga nokkur góð færi áður en þeir skoruðu á 24 mín. eftir varnarmistök.  Fjölnismenn héldu áfram að ráða gangi leiksins og voru líklegri, en það voru Sindramenn sem skoruðu gegn gangi leiksins. Heiðar skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf Jóns Eiríkssonar á 35 mín.  Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks sýndi liðið smá lífsmark en án þess að valda nokkrum vandræðum fyrir Fjölnismenn.</description>
Verslunarmannahelgin nálgast
      <description>Mörg fyrirtæki gefa starfsfólki sínu tækifæri til að komast snemma  í frí fyrir verslunarhelgina. Hjá Bestfiski á Höfn var síðasti móttökudagur af bátunum í gær þriðjudag, þannig ætti að takast að vinna upp á fimmtudag. Fiskgæði taka á móti fiski fram á fimmtudag.</description>
Jöklamýsnar vekja mesta athygli
      <description>Góð aðsókn hefur verið að Jöklasýningunni í sumar  og  sýningargestir nokkuð á annað þúsund. Aðgangur var ókeypis á sýninguna um síðustu helgi í tilefni þess að sett hafa verið upp tvö líkön á sýningunni. Annars vegar líkan af landinu öllu með hnappaborði, sem upplýsir staðsetningu hvers jökuls ásamt grunnupplýsingum um þá og hins vegar stórt líkan af Vatnajökli og umhverfi hans. Líkönin eru gerð af Sigurði Halldórssyni í Módelsmíði ehf.</description>
Vatnajökulsþjóðgarður- til góðs eða ills
      <description>Roger Crofts,fyrrum framkvæmdastjóri Scottis Natural Herritage, sem er stofnun sem fer með yfirstjórn náttúruverndar í Skotlandi, hélt fyrirlestur um Vatnajökulsþjóðgarð á Hótel Skaftafelli í Freysnesi 23. þ.m. Crofts fjallaði um helstu atriði sem hann telur að þurfi að taka á svo Vatnajökulsþjóðgarður verði að veruleika. Um þrjátíu manns mættu á fyrirlesturinn ásamt þeim Einari Sveinbjörnssyni aðstoðarmanni umhverfisráðherra og Tryggva Felixsyni framkvæmdastjóra Landverndar.</description>
Helmingi betri golfvöllur.
      <description>Miklar framkvæmdir eru hafnar við golfvöllinn á Höfn. Vegur hefur verið lagður yfir leiruna norðan við Silfurnesið,  þar sem golfvöllurinn er, yfir á Langhólanes þar sem nýtt svæði verður tekið undir golfvöll, viðbót við þann sem fyrir er. Vegtenging verður yfir leiruna  milli vallanna. Önnur tenging verður frá Langhólanesi í hólmann og úr hólmanum verður slegið í land.</description>
Sílavík paradís fuglaskoðara.
      <description>Í fuglaskoðunarferðum, sem eru alla miðvikudaga í sumar, er farið  frá Þjónustumiðstöðinni á Höfn og haldið í Sílavík og inn undir Ægissíðu. Þar er fjölbreitt fuglalíf  og gott að komast nálægt fuglunum. Björn Arnarson fuglaáhugamaður og leiðsögumaður segir að núna þegar vaðfuglarnir fari að koma aftur á leirurnar verði  Sílavíkin paradís fyrir fuglaskoðara.</description>
Uppgangur hjá Sunddeild Sindra
      <description>Sunddeild Sindra hefur æft af kappi í sumar og segir Hjördís Klara Hjartardóttir þjálfari þeirra að krakkarnir séu mjög  efnileg og þetta sé duglegur og góður hópur. Byrjað var að æfa af kappi snemma í júní. Deildin skiptist í þrjá hópa og eru æfingar þrisvar í viku hjá þeim eldri en yngri flokkurinn tvisvar.</description>
      <alt>Sunddeild Sindra</alt>
Sindraskvísurnar unnu Fjarðabyggð 2-1
      <description>Meistaraflokkur kvenna hjá Sindra vann lið Fjarðarbyggðar  2-1. Þetta var baráttuleikur og höfðu Sindrastelpur 2-0 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik var töluverð pressa á mark Sindra en stúlkurnar með sjómanna- og víkingablóðið í æðum stóðust allar sóknir nema eina og uppskáru sætan sigur.</description>
Úrslitaleikur hjá Sindraskvísum á Sindravöllum
      <description>Sindraskvísur sem komnar eru af fræknum sjómönnum og víkingaættum eins og þær kynna sig fyrir keppnina ætla að berjast til síðasta blóðdropa á Sindravöllum á morgun laugardag en þar keppa þær um toppsæti 1. deildar við Fjarðabyggð.</description>
Kort yfir gönguleiðir.
      <description>Komin eru kort yfir gönguleiðir í Suðursveit og Nesjum með um 20 gönguleiðum í hvorri sveit.  Framkvæmdanefnd var tilnefnd frá Búnaðarsambandi-Ferðafélagi- og Ferðamálafélagi A-Skaft og hún hefur það markmið að koma út gönguleiðakorti af hverri sveit í sýslunni þ.e. sérkorti af hverju svæði.</description>
SkjárEinn og Gleðisveit Ingólfs á Víkinni
      <description>Stórhljómsveitin Gleðisveit Ingólfs sem vakið hefur mikla athygli á SkjáEinum er núna á leiðinni ásamt tökuliði SkjáEins til Hafnar til að skemmta á Víkinni föstudagskvöldið 25.júlí og mun tökulið SkjáEins mynda á Víkinni. Aðspurður um Hornafjörð segir Ingólfur umboðsmaður hljómsveitarinnar "Höfn er náttúrulega einn skemmtilegasti staðurinn á landinu þegar kemur að stemmingu og stuði og þetta er gott tækifæri fyrir Hornfirðinga að sýna Íslensku þjóðinni hvernig á að skemmta sér" og að sjálfsögðu tökum við undir orð hans.</description>
Gengið um söguslóðir
      <description>Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur miðað sumarstarf sitt m.a. við að bjóða börnum og unglingum upp á eitthvað áhugavert í hverri viku yfir sumarið td. fjöruferð, fuglaskoðun, lúruveiði, söguferðir bæði innan bæjar og út um sveitir, fornleifaskráningu og myndlist allt undir góðri leiðsögn.</description>
Hörmulegt slys í Almannaskarði
      <description>Banaslys varð í Almannaskarði um fjöguleitið í dag þegar að lítil jeppabifreið með fellihýsi fór út af veginum. Í bílnum voru fullorðin hjón sem munu hafa látist samstundis. Bifreiðin var á leið niður skarðið og fór út af veginum ofarlega í skarðinu og valt niður snarbrattar skriðurnar. Bílstjóri rútubifreiðar á leið út á Stokksnes sá slysið og tilkynnti það til lögreglu. Mjög slæmt skyggni og rigning var þegar slysið varð. Lögreglan á Höfn rannsakar slysið.</description>
Ferðaþjónustan blómstrar
      <description>Þetta er búið að vera alveg frábært í ferðaþjónustunni hjá okkur í sumar, júní mánuður var eins og júlí alltaf fullbókað og vel pantað langt fram á haust og ef heldur áfram sem horfir verður þetta alveg  topp sumar segir Laufey Helgadóttir sem rekur ferðaþjónustuna á Smyrlabjörgum í Suðursveit ásamt manni sínum Sigurbirni Karlssyni.</description>
Umferðafulltrúi kannar notkun bílbelta
      <description>Reynir Arnórsson umferðarfulltrúi og Jónas Friðriksson björgunarsveitarmaður könnuðu bílbeltanotkun á Höfn í gær. Alls voru 260 bílar skoðaðir og reyndust 58 % bílstjóra vera með beltin spent og af 105 farþegum sem voru í þessum bílum voru 64 í beltum. Útkoman er betri en í júní, þá voru 47% með beltin spennt.</description>
Hornfirskir smábátar veiða vel
      <description>Góð veiði hefur verið hjá Hornafjarðar-smábátum undanfarið og hefur afli hjá þeim verið á annað tonn á bát og sumir með yfir tvö tonn.  Aflinn er aðallega þorskur og ufsi. Ufsinn er ekki sérlega vinsæll núna fyrir það hvað lítið fæst fyrir hann. Tveir af stærri bátunum, Öðlingur og Gústi í Papey hafa verið á sjó en veiði verið lítil hjá þeim.</description>
Gistihús á hjólum á tjaldstæðinu
      <description>Sextán herbergja gistihúsi á hjólum var lagt á tjaldstæðinu á Höfn í gærkvöldi. Þar var á ferðinni 29 manna hópur frá Þýskalandi og Austurríki sem ferðast með rútu frá Hópferðamiðstöðinni og gistirútan, með íslenskum bílstjóra, fylgir með.</description>
      <alt>Gistihús á hjólum</alt>
Glæsivagn í myndatöku við Jökulsárlón
      <description>Í siðast liðinni viku var verið að gera auglýsingamynd við Jökulsárlón um hinn nýja SLR MCLaren sportbíl frá Mercedes Benz. Mikil leynd hvíldi yfir myndatökunni þar sem bíllinn verður ekki sýndur opinberlega fyrr en á bílasýningu í Franfurt í haust og óviðkomandi fengu ekki að koma nálægt tökustaðnum.</description>
      <alt>SLR MCLaren sportbíl frá Mercedes Benz</alt>
Úrslit Meistaramóts Golfklúbbs Hornafjarðar
      <description>Meistaramót Golfklúbbs Hornafjarðar (GHH) sem var höggleikur án forgjafar fór fram á Silfurnesvelli um helgina og í þetta skipti var það Hörður Einarsson sem sigraði í karlaflokki, Guðrún Júlía Jónsdóttir í kvennaflokki og Páll Vignisson í unglingaflokki. Alls voru það 14 manns sem tóku þátt í mótinu. Skemmtilegt og spennandi mót sem fór fram í mjög góðu veðri.</description>
Ökumenn eiga heiður skilið.
      <description>Ökumenn sem ekið hafa eftir veginum út í Ósland í sumar eiga heiður skilið fyrir hvað þeir taka mikið tillit til kríuunganna sem  virðast helst vilja vera á veginum og færa sig ekki eða  fara burt fyrr en á síðustu stundu. Það má líklega telja á fingrum annarar handar hvað margir ungar hafa sést dauðir á veginum og er það  sennilega met ef litið er til seinni ára.</description>
ISS Ísland auglýsir eftir starfsfólki á Höfn
      <description>Nýlega gerðu Skinney-Þinganes og ISS Ísland með sér verksamning sem felur í sér að frá 1. september n.k. tekur ISS Ísland við þrifum í húsnæði Skinney-Þinganes. Auglýst hafa verið nokkrar stöður við þrifin og er þar um að ræða 50-75% störf. Að sögn Ásgeirs Benediktssonar sem er gæðastjóri matvælasviðs hjá ISS Ísland þá mun verða innleitt nýtt þrifakerfi og búnaður sem auðveldar framkvæmdina.</description>
Spennið beltin ökumenn góðir
      <description>Við spennum ekki bílbeltin fyrir lögregluna. Við spennum bílbeltin fyrir okkur sjálf og fyrir börnin okkar og við sjáum líka um að þau séu með beltin spennt áður en ekið er af stað”. Þetta eru verðugar ábendingar frá Reyni Arnþórssyni umferðarfulltrúa Slysavarnafélagsins. Stóra vandamálið í umferðinni er alltaf það sama þ.e. bílbeltanotkunin, hún er ekki góð segir Reynir.</description>
Skjólbeltarækt eða nytjaskógur
      <description>Trjábúskapur er vaxandi búgrein á Íslandi og fjöldi bænda hefur  skipt úr þessum hefðbundna búskap með kýr og kindur yfir í skógrækt. Þeir sem keypt hafa jarðir án búfés fara margir út í skógrækt. Hvað þarf sá  að gera sem á jörð og vill gerast skógarbóndi? Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógi svarar þessu og segir að fyrst þurfi að ákveða hvort viðkomandi vill fara í skjólbeltarækt eða nytjaskógrækt en munurinn þar á er mikill.</description>
Línudans í Sindrabæ
      <description>Nú gefst þeim hornfirðingum sem vilja læra línudans og þeim sem þegar kunna sporin að mæta í Sindrabæ annað kvöld því þá mætir Jóhann Örn Ólafsson, danskennari úr Danssmiðjunni á staðinn og kennir línudans. Danssmiðjan var fyrstur dansskóla til að halda námskeið í línudansi sumarið 1996 og síðan þá hefur Jói Dans kennt þúsundum Íslendinga að stíga dansspor í línu.</description>
Göngubrú yfir Jökulsá í Lóni.
      <description>Byrjað er á að gera göngubrú yfir Jökulsá í Lóni inn við Eskifell. Brúin verður 90 metra löng og að því best er vitaðverður þetta lengsta göngubrú á landinu. Brúin verður smíðuð í Reykjavík,samkvæmt útboði, og síðan sett saman á staðnum. Vegagerðin sér um að koma upp undirstöðum fyrir brúna. Áætlaður kostnaður er um 15 m.kr.</description>
Mikill golfáhugi á Hornafirði
      <description>Í vor stóð Golfklúbbur Hornafjarðar fyrir kvennanámskeiði og voru 15 konur sem skelltu sér á námskeiðið og eru þær núna komnar á fullt í golfíþróttinni. Frá því námskeiðið var haldið hafa verið fyrirspurnir um hvenær von væri á nýju námskeiði enda golf skemmtileg íþrótt og góð útivera.</description>
Fleiri útlendingar fara í Kollumúla en áður
      <description>Ferðaþjónustan á Stafafelli í Lóni býður uppá rútuferðir í Kollumúla og einnig  er hægt að fara í dagsferðir eða lengri ferðir og fara gönguleiðir um öræfin og taka fleiri daga í ferðina. Fjöldi ferðafólks er svipaður og sl.sumar en hlutföll íslendinga og útlendinga eru önnur þ.e. nú eru 80-90 % útlendingar sem koma en voru 50 % í fyrra.</description>