Ljósmyndakeppni Sparisjóðanna
Í sumar efna sparisjóðirnir til ljósmyndakeppni fyrir þá krakka sem eru félagar í Króna og Krónu og Speki klúbbunum. Króna og Króni er klúbbur fyrir krakka upp að sjö ára aldri. Speki er nýr klúbbur Sparisjóðsins fyrir krakka á aldrinum 8-11 ára sem finnst gaman að spegúlera í öllum heimsins ráðgátum og vilja hafa fjármálin sín á hreinu og snemma beygist krókurinn að því sem verða vill og því eins gott að hafa peningamálin á hreinu.
Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir í Sparisjóði Hornafjarðar segir að krakkarnir séu mjög dugleg og áhugasöm um að taka þátt í keppninni. Til að vera með í keppninni þurfa krakkarnir að leggja minnst fimm hundruð krónur inn á sparisjóðsbókina sína og í verðlaun fá þau einnota kodak myndavél til að taka þátt í keppni um skemmtilegustu myndina. Þegar búið er að taka á filmuna er hægt að láta framkalla hana hjá Hans Petersen með 30 % afslætti.
Sigurvegarar í keppninni fá veglega vinninga: 1. vinningur er 20.000 kr inneign hjá Sparisjóðnum og Canon Ixus lll myndavél frá Hans Petersen.
2. verðlaun,15.000 kr inneign hjá Sparisjóðnum og Cannon Ixus Z 65 myndavél frá Hans Petersen. 3.verðlaun,10.000 kr inneign hjá Sparisjóðnum og Cannon Ixus l vatnsheld myndavél frá Hans Petersen.
Lokadagur til að senda inn myndir í keppnina er 8.september.





Skrifa athugasemd