Júlí
Þurfa Sindraskvísurnar að taka meistaraflokk í kennslu
Þurfa Sindraskvísurnar að taka meistaraflokk í kennslu

30.07.2003 Júlí

Meistaraflokkur til slátrunar

Það var á glæsilegum leikvangi Fjölnismanna sem algerlega andlaust lið Sindramanna sem mætti til sláttrunar. Fjölnir tók strax öll völd á vellinum og voru búnir að eiga nokkur góð færi áður en þeir skoruðu á 24 mín. eftir varnarmistök.  Fjölnismenn héldu áfram að ráða gangi leiksins og voru líklegri, en það voru Sindramenn sem skoruðu gegn gangi leiksins. Heiðar skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf Jóns Eiríkssonar á 35 mín.  Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks sýndi liðið smá lífsmark en án þess að valda nokkrum vandræðum fyrir Fjölnismenn. 
Fyrsta eina og hálfa mín. seinni hálfleiks lofaði góðu fyrir Sindramenn tvö hálffæri sem urðu að engu eftir það hrundi leikur liðsins á 48 mín. skoraði Fjölnir annað mark sitt í leiknum eftir aukaspyrnu.  Fjölnismenn héldu áfram að fá færi og skoruðu á 58 mín. mark sem sumir vilja gleyma sem fyrst.  Síðasta naglann negldu þeir svo í kistuna á 87 min. eftir að hafa misnotað nokkur góð færi.  Vissulega eru Fjölnismenn með mjög gott lið en Sindrastrákarnir þurfa að taka sig vel á fyrir leikinn gegn Léttis mönnum ef niðurlægingin á ekki að vera algjör.
 Sindrapistill: Sindri Ragnarsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica