Júlí
Guðrún, Tanya og Felix
Guðrún, Tanya og Felix

29.07.2003 Júlí

Jöklamýsnar vekja mesta athygli

Góð aðsókn hefur verið að Jöklasýningunni í sumar og sýningargestir nokkuð á annað þúsund. Aðgangur var ókeypis á sýninguna um síðustu helgi í tilefni þess að sett hafa verið upp tvö líkön á sýningunni. Annars vegar líkan af landinu öllu með hnappaborði, sem upplýsir staðsetningu hvers jökuls ásamt grunnupplýsingum um þá og hins vegar stórt líkan af Vatnajökli og umhverfi hans. Líkönin eru gerð af Sigurði Halldórssyni í Módelsmíði ehf.

Guðrún Ingimundardóttir umsjónarmaður Jöklasýningar sagði að 112 manns hefðu komið um helgina og hefðu útlendingarnir orðið undrandi þegar ekki þurfti að borga inn á sýninguna. Það sem mest kemur á óvart á sýningunni eru Jöklamýsnar og á það bæði við um innlenda og erlenda sýningagesti. Jöklamýs, hvað er það? Jöklamús er mosavaxinn smásteinn sem verður til við jökulröndina og verður ekki jarðfastur svo þegar hann fýkur til er það líkt og mús sé að skjótast, þannig er nafnið tilkomið segir Guðrún. Þessar ,,mýs? verða aðeins til á einstaka svæðum og eru mjög sjaldgæf fyrirbæri, en það er nóg af þeim hér á vissu svæði sem ekki verður gefið upp hvar er. Fólk frá óvenju mörgum löndum allt til Ástralíu hafa komið á safnið í sumar en enginn frá Grænlandi eða Færeyjum svo vitað sé. Talya og Felix sem búa nálægt Tel-Aviv voru mjög ánægð með komuna til Íslands, sögðust þau vera hrifnust af vatninu sem væri allsstaðar og jöklarnir væru stórkostlegir og þeim fannst að fólkið hér væri svo vingjarnlegt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica