Júlí
Nýr golfvöllur
Nýr golfvöllur

28.07.2003 Júlí

Helmingi betri golfvöllur.

Miklar framkvæmdir eru hafnar við golfvöllinn á Höfn. Vegur hefur verið lagður yfir leiruna norðan við Silfurnesið, þar sem golfvöllurinn er yfir á Langhólanes þar sem nýtt svæði verður tekið undir golfvöll, viðbót við þann sem fyrir er. Vegtenging verður yfir leiruna milli vallanna. Önnur tenging verður frá Langhólanesi í hólmann og úr hólmanum verður slegið í land.
Guðný Helgadóttir formaður Golfsklúbbs Hornafjarðar segir að mikil breyting verði á aðstöðunni með þessari stækkun á vellinum og öll þrengsli verði úr sögunni. Golfvöllurinn verður áfram níu holur og eftir stækkun 2620 metra og par 35.
Þetta verður alveg rosalega flottur völlur og góð aðstaða fyrir 3-400 manns. Hér er aldrei biðtími eftir að komast að á vellinum og ekki þarf að panta pláss fram í tímann, það er lúxus segir Guðný. Um 115 manns eru í Golfklúbbi Hornafjarðar og mikil starfsemi, það eru mót nánast um hverja helgi og margt aðkomufólk sem kemur á völlinn.Stæðasta golfmót sumarsins, Hótel Hafnar mótið, verður 23.og 24. ágúst og þá mætir fólk víða að af landinu til leiks.
Við erum núna að sjá langþráðan draum rætast með þessari stækkun á vellinum og þar með gjörbreytta aðstöðu fyrir þá sem vilja stunda þessa hollu íþrótt segir Guðný og hún er viss um að golfáhugi hornfirðinga muni eflast og vaxa betur en nokkru sinni. Framkvæmdaáætlun við stækkun vallarins eru 25 milljónir kr.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica