Uppgangur hjá Sunddeild Sindra
Sunddeild Sindra hefur æft af kappi í sumar og segir Hjördís Klara Hjartardóttir þjálfari þeirra að krakkarnir séu mjög efnileg og þetta sé duglegur og góður hópur. Byrjað var að æfa af kappi snemma í júní. Deildin skiptist í þrjá hópa og eru æfingar þrisvar í viku hjá þeim eldri en yngri flokkurinn tvisvar.
Krakkarnir tóku þátt í keppni á Sumarhátíð ÚIA á Egilsstöðum um síðustu helgi og stóðu sig mjög vel. Janus Gilbert varð fyrstur í 100 metra bringusundi, 50 metra skriðsundi og annar í 100 m fjórsundi og 50 m baksundi. Andri Már var fyrstur í 50 metra bringusundi og þriðji í 50 m baksundi. Örn Þór varð annar í 50 m skriðsundi, baksundi, 100 metra bringusundi og fjórsundi. Ásdís Alda varð önnur í 100 metra bringusundi. Sundmót verður hjá Sindra um miðjan ágúst. Sundfólkið á myndinni er: Janus Gilbert,Ásdís Alda, Sigurbjörg Sara, Þórhildur Rán, Margrét, Örn Þór, Anna Mekkin, Kolbrún Birna, Karitas, Sandra Björg, Sólveig, og þjálfarinn Hjördís Klara.





Skrifa athugasemd