Júlí
Sindri - Fjarðarbyggð berjast á Sindravöllum
Sindri - Fjarðarbyggð berjast á Sindravöllum

26.07.2003 Sindra fréttir

Sindraskvísurnar unnu Fjarðabyggð 2-1

Meistaraflokkur kvenna hjá Sindra vann lið Fjarðarbyggðar  2-1. Þetta var baráttuleikur og höfðu Sindrastelpur 2-0 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik var töluverð pressa á mark Sindra en stúlkurnar með sjómanna- og víkingablóðið í æðum stóðust allar sóknir nema eina og uppskáru sætan sigur.

Mörk Sindra skoruðu Guðný Einars á 37 mín og Sandra Olgeirs á 39 mín. Mark fjarðarbyggðar skoraði Sonja Jóhannsdóttir á 63 mín.  Miralem Haseta sá um dómgæslu og þótti með afburðum góður.

Meistaraflokkur karla hjá Sindra sótti á sama tíma heim Fjölni í Grafarvoginn og áttu okkar menn á brattan að sækja og var staðan í hálfleik 1-1 en eins og oft áður þá misstigu Sindrastrákarnir í þeim síðari og urðu lokatölur 4 - 1. Mark Sindra skoraði Heiðar Aðalgeirsson.  Klukkan fimm í dag byrjaði leikur í 2 .flokki karla þar sem Sindri mætir Tindastól og fer leikurinn fram í Mosfellsbæ og á morgun spila sömu lið aftur á sama stað. 

Á morgun sunnudag keppa síðan 3. flokkur hjá Sindra við Leikni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica