Júlí
Bara bestar
Bara bestar
Bara bestar

25.07.2003 Júlí

Úrslitaleikur hjá Sindraskvísum á Sindravöllum

Sindraskvísur sem komnar eru af fræknum sjómönnum og víkingaættum eins og þær kynna sig fyrir keppnina ætla að berjast til síðasta blóðdropa á Sindravöllum á morgun laugardag en þar keppa þær um toppsæti 1. deildar við Fjarðabyggð.
Sindra stúlkunum hefur gengið mjög vel í sumar en þær hafa spilað 9 leiki og aðeins tapað einum sem var fyrir Hetti frá Egilsstöðum sem fór 3-1, þær hafa alls skorðað 22 mörk og fengið á sig 13. Ef Sindra stúlkurnar vinna leikinn þá eru þær komnar í úrslitakeppni milli riðla sem þýðir að það eru tveir leikir eftir. Þær gætu mætt Fjölni eða sameiginlegu liði HK og Víkings í úrslitakeppninni.
Gott er að hafa í huga að á meðan strákunum hefur ekki gengið vel þá hafa stelpurnar staðið sig frábærlega og verður mjög spennandi að fylgjast með þeim á leiðinni inn í Landsbankadeildina. Kvetjum alla til að mæta á völlinn á morgun laugardag kl. 14:00 og styðja við bakið á stúlkunum okkar. ÁFRAM SINDRI

Lið Sindrastúlkna er skipað eftirfarandi leikmönnum

1 Eydís Einarsdóttir 
2 Guðbjörg Guðlaugsdóttir 
3 Guðný Guðleif Einarsdóttir 
4 Guðrún Ása Jóhannsdóttir 
5 Guðrún Fema Ólafsdóttir 
6 Guðrún Ragna Valgeirsdóttir 
7 Hjördís Klara Hjartardóttir 
8 Hólmfríður Br Þrúðmarsdóttir 
9 Hrund Jónsdóttir
10 Jóna Benny Kristjánsdóttir
11 Lena Hrönn Marteinsdóttir
12 Ríkey Kjartansdóttir
13 Rósa Dröfn Pálsdóttir
14 Sigurbjörg Sandra Olgeirsdóttir
15 Sigurbjörg Sara Benediktsdóttir
16 Sigurborg Jóna Björnsdóttir
17 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica