Júlí
Hoffell
Hoffell

25.07.2003 Júlí

Kort yfir gönguleiðir.

Komin eru kort yfir gönguleiðir í Suðursveit og Nesjum með um 20 gönguleiðum í hvorri sveit.  Framkvæmdanefnd var tilnefnd frá Búnaðarsambandi-Ferðafélagi- og Ferðamálafélagi A-Skaft og hún hefur það markmið að koma út gönguleiðakorti af hverri sveit í sýslunni þ.e. sérkorti af hverju svæði.

 

Gönguleiðakortin af Suðursveit og Nesjum eru komin út og fást þau á helstu ferðaþjónustustöðunum og kosta 750 kr. Sigurlaug Gissurardóttir sem  hefur unnið ötullega að gönguleiðarverkefninu segir að gönguleiðirnar sem kortlagðar eru séu fæstar stikaðar, til þess hefur ekki fengist fjármagn, en að mjög auðvelt sé að fara eftir kortunum. Nokkrar stikaðar leiðir eru út frá Smyrlabjörgum og Vagnsstöðum sem ferðaþjónustuaðilar þar hafa séð um sjálfir. Upphafsskilti eru við nokkrar gönguleiðir þar sem byrjun leiðar er sýnd á korti. Lengd gönguleiða er frá hálfrar klst. göngu upp í heila dagleið og ættu allir að geta fundið leið við sitt hæfi. Sigurlaug segir að fólk hér heima í héraðinu sé ánægt með gönguleiða bæklingana því þeir veita öllum heimild til að fara þessar leiðir án þess að þurfa að biðja landeigendur um leyfi. Þau leyfi voru gefin þegar leiðirnar voru kortlagðar með samþykki landeigenda.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica