Júlí
Hlustað á sögur um Grjóthúsadrauginn
Hlustað á sögur um Grjóthúsadrauginn

24.07.2003 Júlí

Gengið um söguslóðir

Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur miðað sumarstarf sitt m.a. við að bjóða börnum og unglingum upp á eitthvað áhugavert í hverri viku yfir sumarið td. fjöruferð, fuglaskoðun, lúruveiði, söguferðir bæði innan bæjar og út um sveitir, fornleifaskráningu og myndlist allt undir góðri leiðsögn.

Í söguferð á dögunum fór Sigurður Hannesson með krökkunum í Hellrar vestan við Viðborð á Mýrum. Þar er hellir sem Árni á Svínafelli bjó í á árunum 1934 til 1944, einnig aðrir hellar sem notaðir voru fyrir skepnur. Árni hafði byggt kofa við hellisopið og sjást tóftirnar vel. Krökkunum fannst spennandi að sjá hellana sem höfðu verið aðsetur manns í 10 ár fyrir ekki svo mjög löngu síðan og að sjálfsögðu fengu þau að heyra krassandi draugasögur. Frá hellunum var haldið í Þingaskálahóla sem eru inn undir öldunum framan við Fláajökul. Þar er líklegt að hafi verið þinghald til forna þó ekki séu til sagnir um það. Einnig eru á staðnum dysjar og drekkingarhylur einnig hafa fundist þarna mannabein sem gætu verið úr einhverjum sem tekinn hefur verið af lífi.
Næsta þriðjudag verður farið að skoða eyðibýli sem eru einhverstaðar í nágrenni Hafnar og segir Sigurður að þar sé úr mörgu að velja. Í fornleifa skráningarferð voru skoðaðar margar rústir við Fjárhúsahól rétt við gömlu ruslahaugana þar eru sjáanlegar rústir og telja fornleifafræðingar að þar geti hafa verið gamalt býli. Ástæða er til að hvetja fólk til að fara í þessar ferðir Menningarnefndar sem eru bæði fróðlegar og skemmtilegar.

Sjá fleiri myndir úr ferðinni

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica