Gistihús á hjólum á tjaldstæðinu
Sextán herbergja gistihúsi á hjólum var lagt á tjaldstæðinu á Höfn í gærkvöldi. Þar var á ferðinni 29 manna hópur frá Þýskalandi og Austurríki sem ferðast með rútu frá Hópferðamiðstöðinni og gistirútan, með íslenskum bílstjóra, fylgir með.
Þegar komið er á áfangastað er matartjald sett upp og eins tjöld fyrir starfsfólkið sem fylgir hópnum. Hugi Einarsson á Þjónustumiðstöðinni segir að þessi bíll sé búinn að fara nokkrar ferðir um landið og hann á von á öðrum svona hóp í dag. Mjög góð aðsókn hefur verið að tjaldstæðinu síðustu 10 daga og hefur gestafjöldi mest farið upp í um 120 manns yfir nótt. Þjóðverjar eru fjölmennastir erlendra gesta það sem af er sumri og mun fleiri hafa komið frá Hollandi og Sviss en áður. Nokkrir hafa komið frá Ísrael og segir Hugi að það sé frekar óvenjulegt að fá fólk þaðan.





Skrifa athugasemd