Júlí
Glæsileg sveifla hjá Gunnu Steina
Glæsileg sveifla hjá Gunnu Steina (úr myndasafni)

21.07.2003 Júlí

Úrslit Meistaramóts Golfklúbbs Hornafjarðar

Meistaramót Golfklúbbs Hornafjarðar (GHH) sem var höggleikur án forgjafar fór fram á Silfurnesvelli um helgina og í þetta skipti var það Hörður Einarsson sem sigraði í karlaflokki, Guðrún Júlía Jónsdóttir í kvennaflokki og Páll Vignisson í unglingaflokki. Alls voru það 14 manns sem tóku þátt í mótinu. Skemmtilegt og spennandi mót sem fór fram í mjög góðu veðri.

Úrslit voru sem hér segir:

Karlaflokkur
1. sæti Hörður Svavar Einarsson GHH
2. sæti Halldór Steinar Kristjánsson GHH
3. sæti Bragi Bjarnar Karlsson GHH

Kvennaflokkur
1. sæti Guðrún Júlía Jónsdóttir GHH
2. sæti Guðrún Ester Þorsteinsdóttir GHH
3. sæti Guðný Jensdóttir GHH

Unglingaflokkur
1. sæti Páll Sigurður Vignisson GHH
2. sæti Jóhann Bergur Kiesel GHH
3. sæti Guðmundur Kr. Guðmundsson GHH

Næst golfmót á Silfurnesvelli er punktakeppnismót fer það fram n.k. laugardag 26.júlí.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica