Ökumenn eiga heiður skilið.
Ökumenn sem ekið hafa eftir veginum út í Ósland í sumar eiga heiður skilið fyrir hvað þeir taka mikið tillit til kríuunganna sem virðast helst vilja vera á veginum og færa sig ekki eða fara burt fyrr en á síðustu stundu. Það má líklega telja á fingrum annarar handar hvað margir ungar hafa sést dauðir á veginum og er það sennilega met ef litið er til seinni ára.
Ökumaður sem leið átti framhjá kríuvarpinu við Jökulsárlón á þjóðvegi eitt taldi 25 dauðar kríur á ca 200 m vegarkafla og fannst það ófögur sjón. Sömu sögu er að segja frá fleiri stöðum á landinu þar sem jafnvel er svo slæmt ástand að útlit er fyrir að einhverjir leiki sér að því að drepa ungana, sem ekki geta forðað sér, með því að aka yfir þá. Kríuvarpið í Óslandi er með þeim stæðstu á landinu og hefur það vaxið ár frá ári.
Björn Arnarson fuglaáhugamaður segir að kríum þar hafi fjölgað mikið frá því sem var í fyrra og að varpið núna sé bæði þéttara og nái yfir mun stærra svæði. Erlendir ferðamenn sækjast eftir að fara í kríuvarpið og komast í návígi við kríuna. Björn segir að ekki hafi verið mikið týnt af kríueggjum í Óslandinu í vor, þeir sem helst stundi eggjatöku hafi farið í varpið við Jökulsárlón.





Skrifa athugasemd