Júlí
Starfsmaður ISS við þrif
Starfsmaður ISS við þrif

19.07.2003 Júlí

ISS Ísland auglýsir eftir starfsfólki á Höfn

Nýlega gerðu Skinney-Þinganes og ISS Ísland með sér verksamning sem felur í sér að frá 1. september n.k. tekur ISS Ísland við þrifum í húsnæði Skinney-Þinganes. Auglýst hafa verið nokkrar stöður við þrifin og er þar um að ræða 50-75% störf. Að sögn Ásgeirs Benediktssonar sem er gæðastjóri matvælasviðs hjá ISS Ísland þá mun verða innleitt nýtt þrifakerfi og búnaður sem auðveldar framkvæmdina.

Áhersla verður lögð á að þjálfa starfsmenn og kenna þeim að nota aðeins besta búnað og tæki við þrifin sem völ er á.
ISS Ísland er þjónustufyrirtæki á sviði daglegra ræstinga, þrifum í matvælaiðnaði og hreingerninga fyrir fyrirtæki og stofnanir, hjá ISS starfa nú um 570 manns við daglegar ræstingar og hreingerningar á hundruðum fyrirtækja og stofnana á hverjum degi. Saga ISS Ísland spannar yfir 23 ár, ISS Ísland er sjálfstætt íslenskt fyrirtæki að meirihluta í eigu ISS Danmörk og á þann hátt er fyrirtækið hluti af hinu alþjóðlega fyrirtæki ISS A/S.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica