Júlí
Sigurður, Bjarni og sonur Bjarna við trjáplöntunarvélina
Sigurður, Bjarni og sonur Bjarna við trjáplöntunarvélina

18.07.2003 Júlí

Skjólbeltarækt eða nytjaskógur

Trjábúskapur er vaxandi búgrein á Íslandi og fjöldi bænda hefur skipt úr þessum hefðbundna búskap með kýr og kindur yfir í skógrækt. Þeir sem keypt hafa jarðir án búfé fara margir út í skógrækt. Hvað þarf sá að gera sem á jörð og vill gerast skógarbóndi? Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógi svarar þessu og segir að fyrst þurfi að ákveða hvort viðkomandi vill fara í skjólbeltarækt eða nytjaskógrækt en munurinn þar á er mikill.

Skjólbeltarækt getur verið kring um akrana, túnin eða hvað sem er á búinu. Þeir sem það velja fá ekki alveg eins mikið greitt fyrir vinnuna eins og þeir sem eru með nytjaskóg.Greitt er fyrir alla vinnu sem lögð er í skjólbeltin en ekki í fyrir þær girðingar sem þarf að setja til að verja plönturnar fyrir skepnum. Ekki þarf að binda skjólbeltaræktunina við ákveðinn tíma og geta menn ráðið framkvæmdahraðanum sjálfir og eins hvenær þeir vilja hætta.
Séu nytjaskógar valdir þarf að taka frá ákveðið land, minnst 25 hektara, og því þinglýst sem kvöð á jörðina, sem þýðir að þegar búið er að planta skógi þá er það í gildi næstu 40 árin sem er uppskerutími nytjaskóga. Þegar trén eru felld eftir 40 ár fær bóndinn 80% af söluverði þeirra. Rannveig segir að góð vinnulaun séu við að planta trjánum og fyrir þá vinnu sem fer í að hirða um þau í uppvextinum.
Nytjaskógur er fura, greni, ösp, og birki. Í limgerði er notaður víðir og ösp.
Starfsemi Suðurlandsskóga í Austur-Skaftafellssýslu hófst árið 2001 en nokkru áður höfðu nokkrir bændur hafið skóg og skjólbeltarækt í sambandi við Skógrækt ríkisins.Vöxtur á trjám í Hornafirði hefur verið mjög góður segir Rannveig og sl. ár var meðalvöxtur 60 cm. Meiri nákvæmni þarf við skipulagningu á skógrækt á þessu svæði en víða annarsstaðar þar sem undirlendi er lítið og einnig eru miklar þjóðgarðshugmyndir sem taka þarf með í reikninginn. Í árslok 2002 var búið að planta hér 20.7 km af skjólbeltum og 364.598 plöntum í nytjaskóg.
Mest var gróðursett á Lindarbakka í fyrra, 80 þúsund plöntur en alls eru skógarbændur í Hornafirði 22.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica