Júlí
Danssmiðjan með Línudans
Danssmiðjan með Línudans

17.07.2003 Júlí

Línudans í Sindrabæ

Nú gefst þeim hornfirðingum sem vilja læra línudans og þeim sem þegar kunna sporin að mæta í Sindrabæ annað kvöld því þá mætir Jóhann Örn Ólafsson, danskennari úr Danssmiðjunni á staðinn og kennir línudans. Danssmiðjan var fyrstur dansskóla til að halda námskeið í línudansi sumarið 1996 og síðan þá hefur Jói Dans kennt þúsundum Íslendinga að stíga dansspor í línu.
Af tilefni 10 ára afmælis Danssmiðjunnar er Jói nú á hringferð um landið og hafði samband við Dansklúbbinn Takt þar sem hann komst að því að það er mikill áhugi á línudans á Höfn en hér eru tveir línudansklúbbar. Kennslan hefst sem sé í Sindrabæ föstudagskvöldið 18.júlí kl.19:00 og fyrir þá sem dansað hafa áður og vilja læra meira, kostar tíminn kr.2000 og stendur í 100 mínútur. Klukkan 21:00 verður boðið upp á tíma fyrir þá sem vilja læra fyrstu sporin (byrjendur) og stendur sá tími í 50 mínútur og kostar kr.1000. Er þetta ekki góður undirbúningur fyrir þá sem ætla að vera virkir línudansarar í vetur og geta borið af á dansgólfinu í Víkinni eða Hótel Höfn að því ógleymdu þá er línudans mjög skemmtileg leið til að halda sér í líkamlegu horfi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica