Júlí
Bor vegagerðarinnar við Skyndidalsá
Bor vegagerðarinnar við Skyndidalsá

17.07.2003 Júlí

Göngubrú yfir Jökulsá í Lóni.

Byrjað er á að gera göngubrú yfir Jökulsá í Lóni inn við Eskifell. Brúin verður 90 metra löng og að því best er vitaðverður þetta lengsta göngubrú á landinu. Brúin verður smíðuð í Reykjavík,samkvæmt útboði, og síðan sett saman á staðnum. Vegagerðin sér um að koma upp undirstöðum fyrir brúna. Áætlaður kostnaður er um 15 m.kr.

Fleiri framkvæmdir eru á döfinni á leiðinni í Lónsöræfi. Í stórflóðunum sl. vetur ruddi Skyndidalsá burt hluta úr varnargarði á aurunum og skemmdir urðu á veginum inn í Kollumúla. Vegagerðin mun á næstunni byrja á að gera við garðinn og setja stuttan garð í viðbót til að beina ánni frá veginum. Sprengja þarf til að ná í grjót í garðinn og er grjótborinn kominn á staðinn. Búið er að gera við veginn þar sem áin braut úr honum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica