Mikill golfáhugi á Hornafirði
Í vor stóð Golfklúbbur Hornafjarðar fyrir kvennanámskeiði og voru 15 konur sem skelltu sér á námskeiðið og eru þær núna komnar á fullt í golfíþróttinni. Frá því námskeiðið var haldið hafa verið fyrirspurnir um hvenær von væri á nýju námskeiði enda golf skemmtileg íþrótt og góð útivera.
Klúbburinn hefur nú brugðist við þeim fyrirspurnum og auglýst á nýtt námskeið fyrir konur og er áhugasömum bent á að hafa samband við Halldór Sævar í síma 478 1503.
Golfklúbburinn stendur einnig fyrir opnum golfdegi fyrir krakka og er hann einu sinni í viku á þriðjudögum kl.13. Þeir krakkar sem ekki eiga golfkylfu geta einnig mætt. Unga kynslóðin lætur ekki sitt eftir liggja og hver veit nema þar hefjist ferill hornfirsks Tiger Woods.





Skrifa athugasemd