Júlí
Járnarusl sent í endurvinnslu
Járnarusl sent í endurvinnslu

15.07.2003 Júlí

Brotajárnshaugurinn farinn

Undanfarna daga hefur verið unnið að útskipun á brotajárni sem búið var að safna saman allstaðar að úr sveitarfélaginu. Einnig fer járn úr skermunum á Stokksnesi.

Hringrás hf. tekur við brotajárninu þar sem því hafði verið safnað saman og sér um útskipun á því. Áætlað magn er á þriðja þúsund tonn.

 

Valur Sveinsson hefur haft veg og vanda að umfangsmikilli söfnun brotajárns um alla sýsluna og  taldi hann að þetta gætu verið hátt á þriðja þúsund tonn en það kemur betur í ljós þegar búið er að koma öllu í skipið. Þó mikið hafi safnast af járnarusli til endurvinnslunar segir Valur að talsvert sé eftir, margir hafi tekið vel til t.d. hafi farið 30 tonn frá einum bæ en samt verið nokkuð eftir. Hreinsun  og kostnaður sveitarfélagsins á brotajárninu kostar  eina milljón og tvö hundruð þúsund. Tekið er á móti öllu járnarusli í gámastöðinni að ógleymdum bílunum sem lokið hafa hlutverki sínu. Skilagjald er greitt fyrir bíla sem eru árgerð 1988 og yngri uppfylli þeir tilskilin skilyrði sem starfsmenn gámastöðvar veita upplýsingar um.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica