Júlí
Á Humarhátíð
Á Humarhátíð

15.07.2003 Júlí

Hornfirðingum fjölgar um 3

Samkvæmt upplýsingum Hagstofu þá hefur hornfirðingum fjölgað um 3 á tímabilinu apríl-júní en þeim fækkaði um 21 frá áramótum til 31. mars. Á tímabilinu janúar til mars þá fluttu 39 manns úr sveitarfélaginu en 16 fluttu í sveitarfélagið. Mars-Júní voru það 21 sem fluttu burtu en 24 fluttu í sveitarfélagið. Nú er bara að halda áfram og fjölga enn meir enda mannlíf gott og ákjósanlegur staður til búsetu.

Fyrir þá sem ekki vita þá er öll heilsugæsluþjónusta mjög góð og sennilega með þeirri bestu á landsbyggðinni. Skólamál staðarins allt frá leikskóla í menntaskólanám eru í góðu lagi. Eitt er þó vandamál á Hornafirði, skíðamenn verða að leita annað eftir snjó því hann sést yfirleitt ekki yfir veturinn nema dag og dag í einu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica