Júlí
Opna HP golfmótið
Opna HP golfmótið

14.07.2003 Júlí

Golfmót helgarinnar á Silfurnesvelli

Á opna HP golfmótinu sem fór fram á Silfurnesvelli í gær urðu Halldór Steinn og Guðný í fyrsta sæti.  Veðrið spillti ekki fyrir en það var sól og um 20 stiga hiti á vellinum. Keppt var í kvenn- og karlaflokki og alls tóku 29 manns þátt í mótinu. Verðlaun ekki af verri endanum en þau voru tölvubúnaður í boði Opinna kerfa. Því miður náði enginn að fara holi í höggi en þá hefði viðkomandi eignast fjölnota tæki sem er prentari, ljósritunarvél og skanni. Veitt voru nándarverðlaun á tveimur holum (þriðju og fimmtu) , það eru verðlaun fyrir að vera næst holu á fyrirfram ákveðnum brautum í upphafshöggi. Þau hlutu Hákon Gunnarsson og Halldór Birgis.

Úrslit voru sem hér segir: 

Karlar
1. sæti Halldór Steinar Kristjánsson GHH 47 punkta
2. sæti Halldór Birgisson  GHH 37 punkta
3. Sæti Páll Sigurður Vignisson  GHH 37 punkta

Konur
1. sæti Guðný Helgadóttir  GHH 35 punkta
2. sæti Guðrún Ester Þorsteinsdóttir GHH 33 punkta
3. sæti Linda Helena Tryggvadóttir GHH 30 punkta


Næst golfmót á Silfurnesvelli er innanfélagsmeistaramót Golfklúbbs Hornafjarðar sem fer fram næstu helgi.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica