Júlí
Hverjar eru bestar
Hverjar eru bestar

14.07.2003 Júlí

Helgarpistill knattspyrnudeildar Sindra

4. flokkur karla tók á móti Aftureldingu úr Mosfellsbæ inn á Mánavelli sl. föstudag, okkar drengir sáu aldrei til sólar og lokatölur 0-9. Næst var það mfl. karla sem tók á móti KFS frá Vestmannaeyjum og eftir góðan fyrri hálfleik var staðan 0-0. Strax í byrjun síðara hálfleiks skoruðu gestirnir úr víti. Þar var að verki gamla markamaskína Sindri Grétarsson sem átti svo eftir að hrella okkur svo um munaði. Okkar drengir héldu áfram og á 61. mínutu jafnaði Steinar Vífils með fallegu marki og nú héldu við að takturinn væri komin, nei Adam komst aldrei í Paradís því strax á eftir var Sindri Grétarsson aftur á ferðinni og skoraði gull af marki og svo 10 mínutum síðar fullkomnaði hann þrennuna sína og staðan orðin 1-3, en okkar drengir voru ekki hættir og á 72. mínutu minkaði Júlli muninn þegar hann skoraði úr víti. Lengra fengum við ekki að komast þrátt fyrir að skora eitt mark og áttum að fá a.m.k. eitt víti til viðbótar! Áhorfendur sáu arfa slakt dómaratríó stela stigi eða stigum af okkur.

Meistaraflokkur kvenna fékk Tindastól í heimsókn og komust stólarnir yfir á 18. mínutu með marki frá Ingu B. Friðjónsdóttir. Stelpurnar okkar sýndu samt strax úr hverju þær eru gerðar og jöfnuðu á 20. mínutu Guðrún Ása var þar að verki. Baráttan hélt áfram og þrátt fyrir slæmar vallaraðstæður sýndu bæði liðin ágætis fótbolta en það var ekki fyrr en á 76. mínutu að Guðný Einars skoraði fínt mark og kom Sindra yfir 2-1 og við það sat. Ágætis færi voru þá á báða bóga það sem eftir lifði leiks en sem sagt Sindra sigur og stelpurnar með 18 stig í 1-2 sæti og hafa aðeins tapað einum leik og greinilegt að þær stefna á úrslitakeppnina um laust sæti í úrvaldsdeild.

3. flokkur karla fékk Selfoss í heimsókn og var spilað inn á Mánavelli í mjög góðu verði og á ágætis velli nokkuð sem ekki hefur verði hægt að bjóða upp á í sumar. Leikurinn var hin ágætasta skemmtun og var staðan 1-1 í hálfleik. Bæði liðin skorðu svo tvö mörk í seinni hálfleik og loka staðna því 3-3 og vantaði aðeins tvær mínutur upp á að við hefðum sigur.

2. Flokkur karla skrapp á Ólafsfjörð og keppti við sameinað lið Leiftur, Dalvík og Árskógströnd. Eftir langt ferðalag tók við hinar verstu hremmingar sem við höfum lent í lengi. Þar lék dómarinn aðahlutverkið og þegar upp var staðið hafði hann vísað þremur leikmönnum okkar útaf og aðstoðarþjálfarum líka. Þá vísaði hann einum norðanmanni útaf. Leikurinn endaði 5-3 okkur í óhag

7. flokkur karla fór á Lottó mót á Akranesi og verður fjallað nánar um það í vikunni.

Valdemar Einarsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica