Hópur húsbíla á hringferð
Glæsilegur floti húsbíla streymdi inn á tjaldstæðið á Höfn rétt fyrir kvöldmatinn í kvöld. Hér voru á ferð fjörutíu og fimm húsbílar flestir af Reykjavíkursvæðinu á hringferð um landið. Hugi Einarsson í Þjónustumiðstöðinni tók á móti hópnum við sýslumörkin á Skeiðarársandi og afhenti öllum Suð-austurlands ferðabæklinga.
Um hundrað manns eru í þessu húsbílaferðalagi og á morgun verður haldið til Djúpavogs og farið með Papeyjarferjunni út í Papey. Útlit er fyrir bjartviðri á morgun ef marka má veðurspá, en nokkuð var um vætu í dag þegar leið á daginn einkum meðan stansað var við Jökulsárlón. Áætlað er að hópurinn komi aftur til Reykjavíkur næsta laugardag.





Skrifa athugasemd