Júlí
Sandra Rán skorar fyrir Sindra
Sandra Rán skorar fyrir Sindra

09.07.2003 Júlí

Sindrastúlkurnar sigruðu Einherja 6-1

Í hörku knattspyrnuleik í 4 flokki kvenna sem fór fram á Sindravöllum í dag sigruðu Sindrastúlkurnar Einherja frá Vopnafirði 6-1. Þær sem skoruðu mörkin fyrir Sindra voru Hebba Björg Þórhallsdóttir 3 mörk, Semla Lind Jónsdóttir, Sandra Rán Ásgrímsdóttir og Ester Lind Hauksdóttir 1 mark hver.
Aðstæður voru mjög erfiðar þar sem völlurinn var mjög blautur og rigndi eins og hellt væri úr fötu. Sindrastúlkurnar eru nú efstar í austurriðlinum á Íslandsmótinu. Stúlkurnar mæta næst KBS frá Fáskrúðsfirði og Þrótti Neskaupsstað, báðir leikirnir eru heimaleikir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica