Júlí
Gissur Hvíti SF55
Gissur Hvíti SF55

09.07.2003 Júlí

Vísir hf kaupir Útgerðarfélagið Garðey

Útgerðarfélagið Vísir hf. í Grindavík hefur keypt Útgerðarfélagið Garðey, Gissur Hvíta SF55 og Garðey SF 22 og ásamt eitt þúsund tonna þorskígildiskvóta. Vísir hf hefur haft Garðey á leigu sl. fjögur ár ásamt aflaheimildum og hefur skipið að mestu verið gert út frá Djúpavogi þar sem Vísir hefur verið með útgerð og fiskverkun í nokkur ár.

Guðjón Þorbjörnsson sagði að ekki hefði verið grundvöllur fyrir sölu útgerðarinnar til heimamanna og ekki væri um forkaupsrétt að ræða þegar útgerðarfélag væri selt með skipum og aflaheimildum. Guðjón vildi ekki segja neitt um hvaða hlutverk biði Garðeyjarhússins en það fylgdi ekki með í sölunni, framtíð þess væri óráðin og biði betri tíma.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica