Úrslit í kassabílaralli á Humarhátíð
Kassabílarall á vegum Landsbankans er hluti af Humarhátíðinni og á hverju ári sjáum við nýjar útgáfur af kassabílum og var þetta árið engin undantekning. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í keppninni, fyrir flottasta bílinn og þann frumlegasta. Í 1.sæti voru Hafþór Smári Imsland (12 ára) og Andri Bergsteinn Arnviðarson (7 ára) 2. sæti Kristofer Örvar Ögmundsson (8 ára) og Guðbjörg Stella Ögmundsdóttir (12 ára) í 3. sæti Guðmundur Pétursson (7 ára) og Egill Þór Þórðarson (12 ára). Farandbikar fyrir flottasta bílinn sem var pallbíll með sturtu hlutu Guðmundur Pétursson (7 ára) og Egill Þór Þórðarson (12 ára). Farandbikar fyrir frumlegasta bílinn sem var bleikur pony hlutu Berglind Borgþórsdóttir (12 ára) og Elín Gunnarsdóttir (10 ára). Svo er bara að bíða til næstu humarhátíðar eftir nýjum kassabílum en nokkrir þátttakendur gefið út að þeir sé þegar farnir að huga að þeirra framlagi til keppninnar 2004




Skrifa athugasemd