Júlí
Haldið af stað á lúruveiðar
Haldið af stað á lúruveiðar

08.07.2003 Júlí

Lúruveiðiferð á vegum Menningarmiðstöðvar

Hópur krakka mætti á smábátabryggjuna í morgun til að fara á lúruveiðar og var það Menningarmiðstöðin sem stóð fyrir ferðinni en tilgangurinn var að kynna þennan gamla veiðimáta fyrir ungu kynslóðinni. Snoddi (Ágúst Þorbjörnsson) var fenginn til að sjá um ferðina enda mikill lúruveiðimaður. Mikill áhugi var meðal krakkana og þurfti að fara nokkar ferðir til að allir kæmust á veiðar.
Lúra er hornsfirskt heiti yfir kola og var veidd á árum áður í Hornafirði og þótti herramanns matur nýsoðin eða steikt í raspi með smjöri. Lúran var einnig hert eftir að búið var að afhausa og slógdraga því næst var hún hengd upp í rjáfur og hjalla yfir sumarið og geymd til veturs. Hert lúra var skorin niður í mjóa strimla, með roði og þvert á beinin og borðuð með smjöri. Lúran var einnig hleypt og það var áður gert með því að leggja hana á glóð eða vel heita eldavél og bökuð á bæði borð uns hún var orðin heit í gegn og sjá mátti að fiskurinn var byrjaður að losna frá beininu, var hún þá tekin af glóðinni, dýft niður í volgt vatn, lögð á þurrku og undin í henni milli fingra sér, uns fiskurinn losnaði allur vel frá beini, sem sagt herramanns matur. Enn þann daginn í dag eru nokkrir lúruveiðimenn sem veiða lúruna í firðinum sér til matar.

Heimild: Ágúst Þorbjörnsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica