Júlí
Hornafjarðarós dýpkun
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Innsiglingin um Hornafjarðarós

08.07.2003 Júlí

Dýpkun á grynnslunum útaf Hornafjarðarós

Í sumar verður farið í dýpkunarframkvæmdir á grynnslunum utan við Hornafjarðarós og verður verkið boðið út á næstunni. Grafinn verður skurður þvert gegnum grynnslin þar sem myndast hefur hóll í innsiglingunni. Þessi neðansjávarskurður verður um 500 metra langur og 70-80 metra breiður.

Í gegnum árin hefur mikil vinna verið lögð í að bæta erfiða innsiglingu og gera hana örugga. Byggðir voru sjóvarnargarðar á fjörunum,fyrst á Suðurfjörutanganum 1991, síðan á Austurfjörutanganum 1995 og 2001 leiðigarður af Austurfjörum út í Þinganessker. Þessar framkvæmdir hafa leitt til þess að innsiglingin er nú orðin örugg stærri skipum en áður.

Með tilkomu stærri og djúpristari skipa, þá er nú svo komið að grynnslin, sem er einskonar sandefnisalda, 1-2,0 metrar að þykkt, suður af Ósnum er orðinn þröskuldur að annars mjög góðri innsiglingarrennu hér á Höfn, þar sem dýpi á þessu svæði hefur verið allt niður á um 6 metra eftir aðstæðum hverju sinni en algeng djúprista skipa í dag er um og yfir 7 metra.

Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að með þessum framkvæmdum sé verið að tryggja að skip með 7 metra djúpristu geti á öruggan hátt siglt um innsiglinguna, en í dag eru tvö nýjustu uppsjávarveiðiskip í skipaflota Hornfirðinga með 7 metra djúpristu.

Þessi skurður er reynsluverkefni til að sjá hvort hann kemur til með að varna því að sandhólar myndist í innsiglingunni og hvort staðsetning hans er sú rétta. Efnið, sem dælt verður upp, verður losað á svæði suður af grynnslunum þar sem sjávarstraumar eru hagstæðir og munu bera efnið út á meira dýpi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica