Góð þátttaka á Humarhátíðar-golfmótinu
Humarhátíðar-golfmótið fór fram á Silfurnesvelli um helgina og var keppt í kvenn-, karla- og unglingaflokkum. Vegleg verðlaun voru í boði frá Skinney-Þinganesi sem að sjálfsögðu var m.a. humar. Mótið hófst kl.9 en þá var ræst út á öllum teigum. Um 50 manns tóku þátt í mótinu og var mun betri þátttaka en í fyrra. Úrslit í karlaflokki urðu þau að Halldór Steinar Kristjánsson var í 1.sæti Héðinn Sigurðsson í 2 og Helgi Örn Kristinsson í því 3ja allir frá Golfklúbbi Hornafjarðar. Í kvennaflokki var það Arnheiður Jónsdóttir frá Golfklúbb Selfoss sem var í 1.sæti, í 2.sæti Laila Ingvarsdóttir frá Golfklúbbnum Kili og í 3. sæti Guðrún Ester Þorsteinsdóttir frá Golfklúbb Hornafjarðar. Í unglingaflokki var í 1. sæti Ólafur Ingi Guðmundsson, 2. sæti Páll Sigurður Vignisson og í 3ja sæti Guðni Rúnar Jónsson allir frá Golfklúbbi Hornafjarðar. Næsta golfmót verður Hewlett Packard Golfmótið sem verður haldið 13. júlí n.k.





Skrifa athugasemd