Júlí
Sjávarútvegsráðherra ávarpar mótsgesti
Sjávarútvegsráðherra ávarpar mótsgesti
Frá Fjórðungsmót hestamanna við Stekkhól Sjávarútvegsráðherra ávarpar gesti. (úr myndasafni)

06.07.2003 Júlí

Um sjö hundruð manns á fjórðungsmóti hestamanna.

Um sjöhundruð manns hafa komið á fjórðungsmót hestamanna við Stekkhól. Ekki hefur viðrað eftir rigningarspá veðurstofu aðeins smá skúrir annað slagið þess utan ágætis veður. Skógeyjarferðin var á föstudagskvöld og voru útreiðarmenn rúmlega hundrað. Ferðin gekk í alla staði mjög vel og skemmtu menn sér grillveislu og söng.

Lárus D.Pálsson framkvæmdastjóri segir að mótið hafi gengið mjög vel og helsti viðburður þess sé að Hafliði Halldórsson vann töltkeppnina á hryssunni Ásdísi frá Lækjarbotnum. Hafliði ætlar að fara með hryssuna til Herning í Danmörku og reyna að verja heimsmeistaratitilinn í tölti. Þetta er líklega síðasta keppni Ásdísar á Íslandi þar sem ekki má flytja hesta til baka sé farið með þá til útlanda. Í dag verða úrslit í keppninni við Stekkhól og verðlaunaafhendingar. Mótsslit verða kl.15.30

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica