Sláturhúsið starfrækt í haust.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarið er verið að fækka sláturhúsum á landinu og hagræða í sauðfjárslátrun. Einar Karlsson sláturhússtjóri segir að sláturhúsið á Höfn hafi ekki lent í niðurskurðinum og slátrun verði með sama hætti og verið hefur.Lítið er eftir af lambakjöti frá síðasta hausti og segir Einar að það verði allt farið fyrir haustið .
Ekki er vitað hvort sumarslátrun verður í ár, þar ræður markaðurinn og hvaða verð bændur geta fengið fyrir lömbin. Einar segir að stórgripaslátrun sé einungis þegar markaður sé fyrir kjötið og hvað mikið magn selst hverju sinni og eins sé með svínin.Ekkert er fryst til geymslu af stórgripakjöti.
Á síðasta hausti var slátrað um 24 þúsund fjár og reiknar Einar með svipuðum fjölda í haust.





Skrifa athugasemd