Júlí
Stekkhóll 800m
Stekkhóll 800m

04.07.2003 Júlí

Mikið um að vera á Fjórðungsmóti hestamanna

Fjórðungsmót hestamanna stendur nú yfir á mótssvæðinu við Stekkhól í Nesjum en það hófst formlega 3. júlí kl.13.00. Lárus D. Pálsson framkvæmdastjóri mótsins sagði að von er á um eitt þúsund manns, nokkrir hópar eru komnir á staðinn og fleiri á leiðinni. Meðal þeirra sem koma ríðandi er Steinn Jónsson á Eskifirði sem kominn er á níræðisaldur, hann fór einnig á hestum sínum á síðasta landsmót hestamanna.
Í kvöld verður farið í hina margrómuðu Skógeyjarútreið. Það er vani Hornfirðinga að ríða með gestum sínum út í Skógey á Fjórðungsmótum. En þangað er mjög skemmtileg reiðleið. Þar verður hægt að fá grillað kjöt og léttmeti. Þar ætlar Skarphéðin Larsen hljóðfæraleikari að skemmta fólki og taka nokkur lög. Gert er ráð fyrir því að leggja af stað frá hesthúsahverfinu við Stekkhól kl. 20.00.
Á laugardag kl. 9.00 er fyrst ungmennaflokkur forkeppni og á sunnudag er byrjað á úrslitum í barnaflokki kl.10.30.
Vegleg verðlaun verða veitt á mótinu, má þar nefna flugfar fyrir tvo til Þýskalands að verðmæti 60.000 ásamt 40 þúsund í peningum, einnig verða veitt peningaverðlaun og verðlaunagripir frá Álfasteini gerðir úr íslensku hráefni.
Boðið verður upp á skemmtidagskrá á föstudags og laugardagskvöld í tengslum við mótið. Kvöldvaka verður á laugardagskvöld á Stekkhól. Mótinu líkur á sunnudag kl.15.30

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica