Veraldarvinir á íþróttavelli Sindra.
Í morgun var mætti hópur unglinga á Sindravöll til að leggja þökur á völlinn. Þetta eru 11 unglingar úr Veraldarvinum, samtökum unglinga víðs vegar að úr heiminum sem bjóða fram vinnu sína endurgjaldslaust. Krakkarnir unnu í gær með vinnuskóla- krökkunum á Höfn við að hreinsa til í bænum.
Hópar frá Veraldarvinum vinna mismunandi sjálfboðavinnu m.a.fyrir og með fötluðum og .öldruðum einnig að menningartengdum málum og fleiru
Óskar, sem er fyrirliði sjálfboðaliðanna, kemur frá Suður-Ameríku og er búinn að vinna í sjálfboðavinnu í fimm ár við ýmis störf víða um heim.Hann segir að krakkarnir sem eru í þessum samtökum kosti ferðir og fæði alfarið sjálf og allan kosnað sem sjálfboðastarfinu fylgir en stundum fái þau frítt gistipláss.
Samtökin sendu mörgum sveitarfélögum á Íslandi tölvupóst þar sem þau buðu fram vinnu sína en flest sveitarfélögin létu ekki svo lítið að svara boði þeirra. Veraldarvinir eru eins og nafnið bendir til friðarsamtök og segir Óskar að tilgangurinn með þessum samtökum sé meðal annars sá að ólíkir menningar og trúarhópar kynnist og vinni saman. Krakkarnir verða á Höfn fram yfir helgina og fara svo í Skaftafell þar sem þau verða í viku og vinna við göngustíga m.a. upp að Svartafossi. Hafi íslenskir unglingar áhuga á að komast í samtökin og fara í sjálfboðavinnu er netfangið veraldarvinir.is.





Skrifa athugasemd