Góð aðsókn að Byggðasafninu.
Björn Arnarson safnvörður er eins og fjöldi Hafnarbúa að hreinsa og snyrta fyrir Humarhátíðina. Búið er að setja gamla sýslutjaldið upp á túninu við Gömlubúð og þar verða seldar veitingar á humarhátíðinni. Sýslutjaldið var fyrst notað 1944 þegar lýðveldinu var fagnað og síðan hefur það verið notað við mörg tækifæri svo sem brúðkaup, afmæli og menningarsamkomu margskonar.
Björn segir að aðsókn að safninu sé búin að vera mjög góð það sem af er sumri og alltaf sé eitthvað að bætast við í safnið, nú síðast framhluti af sjálfum James Bond bílnum,Aston Martini, sem notaður var við kvikmyndatökuna á Jökulsárlóni og skottlok af Jaguar sem tilheyrði vondu körlunum í Bond myndinni.





Skrifa athugasemd