Júlí
Samsett sumarhús í eigu Náttbóls
Samsett sumarhús í eigu Náttbóls

01.07.2003 Júlí

Gisti-hús við Þjónustumiðstöðina

Undanfarna daga hefur verið unnið hörðum höndum að samsetningu sex gisti-húsa sem sett verða niður á tjaldstæðinu á Höfn rétt við Þjónustumiðstöðina.
Þetta eru timburhús frá Finnlandi sem Náttból ehf á Höfn flytur inn í einingum og setur saman. Náttból ehf.er í eigu hornfirðinganna Ágústar Þorbjörnssonar, Einars B. Einarssonar, Huga Einarssonar,Olgeirs Jóhannessonar, Jóns St. Friðrikssonar Auðar Lóu Magnúsdóttur og Magnúsar Jónassonar sem síðustu 10 daga hafa lagt nótt við dag að setja húsin saman svo hægt verði að koma þeim í notkun fyrir humarhátíðina.
Hvert hús er um 16 fermetrar og gistipláss fyrir sex ásamt eldunaraðstöðu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica