Stórlúður á handfæri.
Það eru fleiri en laxveiðimennirnir sem geta talað um ,, þegar þeir fengu þann stóra" það sama geta trillukarlarnir Ásgeir Gunnarsson og Elvar Unnsteinsson á Hornafirði sagt, því báðir fengu þeir mjög stórvaxnar lúður á handfæri á dögunum. Lúðan sem Elvar veiddi var 190 kg næst stæðsta lúða sem veiðst hefur á veiðisvæði Hornafjarðarbáta. Stæðstu lúðuna, 197 kg fékk Unnsteinn Guðmundsson faðir Elvars fyrir nokkrum árum. Lúðan sem Ásgeir fékk var 140 kg. Elvar var að veiðum við Hornafjarðardýpi en Ásgeir djúpt út af Hálsum og voru 16 mílur á milli þeirra. Unnsteinn var að veiða skammt frá og kom hann Ásgeiri til hjálpar og síðan fóru þeir báðir til Elvars því útilokað er fyrir einn mann að ná svona stórum fiski um borð. Lúðan var 20 mín. að koma upp og það tók okkur klukkustund að koma henni upp bátinn sagði Ásgeir en við vorum ekki nema hálftíma að koma lúðunni hjá Elvari um borð en þar þurfti að brjóta úr rekkverkinu til koma lúðunni í bátinn. Veiði hefur verið mjög góð hjá trillukörlum á Höfn og segir Ásgeir að síðastliðinn maí mánuður sé sá besti síðan hann byrjaði með handfæri 1994. Lúðuveiði var óvenjumikil hér í fyrra og þessi byrjun lofar góðu fyrir sumarið.Lúðan hagar sér líkt og laxinn þegar hún er komin á færið og það er alveg meiriháttar skemtilegt að lenda í svona veiði segir Ásgeir og bætti við að handfærarúllurnar stæðust svona álag með prýði.





Skrifa athugasemd