Júní
Tankbíll til skökkviliðsins í Öræfum
Slökkviliðið í Öræfum hefur fengið til afnota 16.000 lítra tankbíl með 1.200 lítra lausri mótordrifinni dælu. Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri á Höfn færði slökkviliðsmönnum í Öræfum bílinn. Gunnar Sigurjónsson slökkviliðsstjóri í Öræfum og menn hans æfðu sig svo á bílinn, dælu og búnað undir handleiðslu Steinþórs.
Slökkvibíll sá sem verið hefur í Öræfunum hefur verið seldur Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þar sem hann á sínum tíma þjónaði sem fyrsti bíll til margra ára en hann er módel 1962 og verður nú einn af forngripunum þar á bæ.





Skrifa athugasemd