Júní
Veiðidagur fjöldkyldunnar.
Stangveiðifélag Hornafjarðar ásamt Sigurði og Jóhönnu í Stórulág í Nesjum stóðu fyrir veiðidegi fjölskyldunnar við Þveitina fyrir stuttu þar sem öllum sem vildu var boðið að koma með veiðistöngina og renna fyrir silung. Veður var blítt en sólarlaust og margir brugðu skjótt við og mættu á staðinn með veiðistöngina.
Álfgeir kom með heimilisvogina og sá um að vigta aflann og mæla. Ekki voru nein met sett í stærð á veiddum silungum og stendur því 4,5 punda metið sem sett var í sumar
Sigurður sagði að ekki væri eins mikið af silungi í vatninu og áður var en hann væri vænni núna.





Skrifa athugasemd