Júní

Slökkviliðsmenn í Öræfum

Tankbíll til skökkviliðsins í Öræfum - 30.06.2003 Júní

Slökkviliðið í Öræfum hefur fengið til afnota 16.000 lítra tankbíl með 1.200 lítra lausri mótordrifinni dælu. Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri á Höfn færði slökkviliðsmönnum í Öræfum bílinn. Gunnar Sigurjónsson slökkviliðsstjóri í Öræfum og menn hans æfðu sig svo á bílinn, dælu og búnað undir handleiðslu Steinþórs.

Lesa meira
 
Brúin yfir Hornafjarðarfljót

Einbreiðum brúm fækkar . - 29.06.2003 Júní

Einbreiðum brúm á leiðinni Hornafjörður Reykjavík fækkar um þrjár á þessu ári en alls eru þær 24. Þær brýr sem teknar verða í notkun fyrir næstu áramót eru: Þjórsárbrú, brú yfir Klifanda og Skaftá. Í Lóni verða Hlíðará og Össurará settar í hólka. Eftir verða fimm einbreiðar brýr frá Hvalnesi að Almannaskarði. Vonir standa til að byrjað verði á Almannaskarðs-göngunum fyrir jól.

Lesa meira
 
Hólmsá við Skinneyjarhöfða

Björgunarsveitin vill vegasamband á Suðurfjörur - 28.06.2003 Júní

Björgunarsveitarmenn á Hornafirði hafa haft til skoðunar aðstæður við Hólmsá á Mýrum með tilliti til ef slys yrði eða annað óhapp við fjörurnar eða ósinn svo hægt væri að koma tækjum og búnaði sem þyrfti að nota ef slys eða annað óhapp yrði við fjörurnar eða ósinn

Lesa meira
 
Veiðidagur fjölskyldunnar

Veiðidagur fjöldkyldunnar. - 21.06.2003 Júní

Stangveiðifélag Hornafjarðar ásamt Sigurði og Jóhönnu í Stórulág í Nesjum stóðu fyrir veiðidegi fjölskyldunnar við Þveitina fyrir stuttu þar sem öllum sem vildu var boðið að koma með veiðistöngina og renna fyrir silung. Veður var blítt en sólarlaust og margir brugðu skjótt við og mættu á staðinn með veiðistöngina.

Lesa meira
 
Af listanámskeiði fyrir börn

Námskeið og kynnisferðir á vegum Menningarmiðstöðvar - 12.06.2003 Menning

Menningarmiðstöðin býður upp á námskeið og kynnisferðir fyrir unglinga og börn í sumar og er þar á meðal fuglaskoðun, rölt með Gísla Sverri þar sem hann fræðir krakkana um sögu Hafnar, Gústi Þorbjörns fer með liðið í Ál á lúruveiði og margt annað skemmtilegt verður á döfinni

Lesa meira
 
Elvar með stórlúðuna

Stórlúður á handfæri. - 03.06.2003 Júní

Það eru fleiri en laxveiðimennirnir sem geta talað um ,, þegar þeir fengu þann stóra

Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica