Apríl
Humarhátíð á næstu grösum
Undirbúningur að humarhátíð er í fullum gangi, humarhátíðarnefnd fundar nú dag og nótt. Eins og fram hefur komið þá mun verða haldið fjórðungsmót hestamanna sömu helgina og humarhátíðin fer fram og hefur verið góð samvinna milli Hestamannafélagsins Hornafirðings og humarhátíðarnefndar með að samræma aðgerðir. Búið er að ráða hljómsveitina en það verður Síðan skein sól sem mun halda upp fjörinu á Humarhátíð.
Búist er við að þessi helgi verði ein stærsta eða frá því að humarhátíð var haldin afmælisárið þegar Sveitarfélagið var 100 ára.





Skrifa athugasemd