Tekinn tali
Hér eru menn búnir að gera sér grein fyrir að náttúran er fjöreggið
Árdís Erna Halldórsdóttir tekin tali
Á meðal þeirra fyrirtækja, stofnana og félaga sem fengið hafa inni í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum er Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu. Þótt félagar þess telji ekki eftir sér að sinna ýmsum viðvikum í sjálfboðavinnu kom samt upp sú staða að umsvifin væru orðin það mikil að ráða þyrfti starfsmann tímabundið til að ljúka verkefnum sem ekki geta beðið betri tíma. Sá sem um ræðir heitir Árdís Erna Halldórsdóttir, hún er ferðamálafræðingur og fædd og uppalin hér á Höfn. Hornafjordur.is er sífellt að þefa uppi hvað helst er á döfinni á svæðinu og því var farið í heimsókn í Nýheima og Ásdís spurð út í starf hennar. (Sjá meira)
Hvað ertu að fást við hérna Árdís?
"Ég er að vinna upplýsingabækling Ferðamálafélagsins sem gefinn er út annað hvert ár. Það þarf að hafa samband við alla sem koma að ferðaþjónustu og sjá hugsanlega hag sinn í að vera með og þátttaka er mjög góð".
Kemur þessi bæklingur út í stóru upplagi?
"Já, það má segja það. Þessi sem nú er að klárast var prentaður í 80.000 eintökum og núna eru eftir 5000 stykki. Það má alveg koma fram hér að bæklingnum er dreift um allt land og einnig er hann sendur hvert sem er í heiminum ef beðið er um það."
Er eitthvað fleira sem gera þarf?
"Já, í vor var opnaður vefur ferðaþjónustunnar í Ríki Vatnajökuls. Núna er ég að bæta inn efni og þá á íslensku og ensku. Ef einhverjir eru með efni sem þeir vilja koma á framfæri á ferðavefnum þá endilega sendið hann á info@visitvatnajokull.is og ég mun sjá um að koma því inn.
Telur þú að svæðið hér hafi sérstöðu að einhverju leyti?
"Já alveg tvímælalaust. Umhverfið er einstakt og sá grunnur sem við byggjum allt hitt á. Sjáðu bara hvað blasir við hérna frá skrifborðinu mínu".
Árdís sýnir mér stórkostlegt útsýni úr vesturglugganum á skrifstofunni hennar, engin mynd gæti toppað það.
Finnur þú fyrir krafti í fólkinu sem kemur að ferðaþjónustunni?
"já heldur betur. Þetta eru ekki svo margir aðilar sem mynda Ferðamálafélagið en miðað við hvað þeir eru að framkvæma mætti halda að fjöldinn væri margfalt meiri. Hér eru menn búnir að gera sér grein fyrir að náttúran er fjöreggið fyrir þetta byggðarlag og mér virðist sem vilji sé til að vanda til verka heildinni til góðs." sagði Árdís Erna að lokum.




