Tekinn tali

Gísli Sverrir Árnason
Gísli Sverrir Árnason
Gísli Sverrir Árnason

Ef draumar okkar rætast verður hér opnuð ein glæsilegasta sýning á landinu

15.01.2005

Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar sagði starfi sínu lausu í haust og hætti formlega um áramótin. Gísli segist þó starfa fyrir Menningarmiðstöðina út janúar. Við starfi Gísla tekur Hjalti Þór Vignisson forstöðumaður stjórnsýslusviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Gísli ætlar að setjast á skólabekk og stunda nám fram á vorið en hann hefur tvo sl. vetur stundað fjarnámi með sinni vinnu og verið í meistaranámi í opinberri stjórnsýslu. Hvað svo tekur við er óráðið segir Gísli, en líklega mun fjölskyldan hugsa sér til hreyfings í sumar. Þegar hann var spurður um þá starfsemi sem hann er nú að yfirgefa og hvað honum væri efst í huga á þessum tímamótum sagði hann: Það sem fyrst kemur upp í hugann er að hafa haft samleið með góðu fólki, mínu samstarfsfólki og öllum Austur-Skaftfellingum. Mitt starf var þannig að ég hef þurft að hafa samskipti við flesta íbúana meira og minna.

Ég er búinn að vinna í tæp 20 ár að menningarmálum í sýslunni segir Gísli, Friðjón sýslumaður réði mig til starfa sem héraðsskjalavörð 10.janúar 1986 og var það eitt af hans síðustu verkum sem sýslumaður hér. Árið 1990 var ég ráðinn forstöðumaður sýslusafnsins, þá hafði verið tekin ákvörðun um að sameina rekstur allra safnanna í sýslunni. Árið 2002 breyttist starfsheiti mitt í ,,Forstöðumann Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar."

Gísli segir að mikil breyting hafi orðið í safnamálum í sýslunni á þessum árum. Þegar ég byrja í starfi forstöðumanns sýslusafnsins var ég einn þar í fullu starfi og þau Gísli Arason og Guðný Svavarsdóttir í hlutastarfi. Núna eru sjö manns í föstu starfi hjá Menningarmiðstöðinni og tveir í hlutastarfi. Starfsemin er öll orðin miklu fjölbreyttari og fer vaxandi, það er mikið af sóknarfærum í þessum geira og mörg verkefni sem þarf að vinna að og hlúa að þeirri starfsemi sem er hér í dag.

Eitt af því sem er á óskalistanum hjá Gísla fyrir Menningarmiðstöðina er að unnið verði sem mest að endurbyggingu gamla hafnarsvæðisins, halda áfram á þeirri leið þar sem byrjað var að endurbyggja Pakkhúsið, taka einhver skref í að endurbyggja Miklagarð og fleiri hús hvert af öðru og fá heildarmynd á þetta svæði sem hefur svo mikið aðdráttarafl fyrir ferðafólk og aðra. ,,Gömlu búðina vil ég alveg tvímælalaust fá út eftir aftur og vona að ég eigi eftir að sjá hana rúlla yfir á gamla staðinn við höfnina".

Búið er að vinna ýmislega undirbúningsvinnu, áætlanir og hugmyndavinnu en ekki verið farið á stað ennþá með eiginlega fjáröflun eða fjármögnun á þessu verkefni en ég tel að komið sé að því segir Gísli. Gróf kostnaðaráætlun liggur fyrir, að gera Miklagarð upp að utanverðu og er það áætlað um 20 mkr. en þá er öll innivinna eftir. Það yrði stór áfangi að koma húsunum í sitt upprunalega útlit að utan og taka svo hitt seinna. Ferðafólk sækir mikið á hafnarsvæðið og Pakkhúsið er vinsæll viðkomustaður og nú er Akurey komin sem hluti af safninu. Sú starfsemi sem tengist höfninni verður ekki fyrir truflunum af þessu og ég tel að þetta fari vel saman, það er þessi sjávarútvegur sem ferðamenn vilja upplifa.

Mikil áform eru með jöklasýninguna og fyrirhuguð uppstokkun á henni á þessu ári. Ef draumar okkar rætast verður hér opnuð í vor ein glæsilegasta sýning á landinu sem vonandi mun laða að þúsundir ferðamanna. Þetta verður alveg ný upplifun, fólk fær að snerta og finna hlutina, skynja þá upp á nýtt. Jöklasýningin verður áfram í Vöruhúsinu við Hafnarbraut og hefur þekktur hönnuður verið fenginn til að hanna hana upp á nýtt. Það er mikil vinna við að leita uppi fjármögnun á henni, sem vonandi tekst segir Gísli og hann vonar að þetta verði að veruleika í vor, svo er líka fyrirhugað að opna í vor fyrsta áfanga Þórbergsseturs á Hala.

hornafjörður.is þakkar Gísla Sverri góð samskipti og óskar honum alls góðs á nýjum vettvangi.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica